Húsakönguló - Tegenaria domestica (Clerck, 1757)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Arachnida Ættbálkur: Araneae Ætt: Agelinidae

Húsakönguló - Tegenaria domestica

Húsakönguló. 10 mm (bolurinn). ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Útbreidd um heim allan.

Ísland
Innanhúss, sennilega í byggðu bóli um land allt þó skráðir fundarstaðir séu allir frá vestan- og norðanverðu landinu, frá höfuðborginni norður og austur um til Mývatnssveitar.

Lífshættir
Húsakönguló finnst hér á landi einungis í tengslum við húsakynni manna, í híbýlum, vöruskemmum og þar sem atvinnustarfsemi er stunduð. Hún er helst þar sem myrkt er og umgengni er lítil, í kjöllurum, geymslum og á háaloftum. Húsakönguló lifir á öðrum smádýrum.

Almennt
Húsakönguló finnst einna helst í gömlum húsum bæði í þéttbýli og til sveita. Þar sem hún nær að hreiðra um sig í ró og næði spinnur hún stóra trektlaga vefi. Slíkir vefir koma oft í ljós þegar hreyft er við húsgögnum sem staðið hafa lengi óhreyfð. Húsakönguló er ekki vel þokkuð þrátt fyrir að hún sé frekar til gagns en óskunda í húsakynnum okkar, þ.e. með því að veiða önnur og e.t.v. skaðlegri smádýr.

Heimildir

Brændegård, J. 1958. Araneida. Zoology of Iceland III, Part 54. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 113 bls.

Ingi Agnarsson 1996. Íslenskar köngulær. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 31. 175 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allar köngulær | Allar pöddur | Íslenska fánan

 



Til baka, , Prenta greinina

 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: