Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Ertuyglu (Melanchra pisi), átvagl í náttúrunni. © Erling Ólafsson

Kornbjalla - Tribolium castaneum (Herbst, 1797)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Coleoptera Ætt: Tenebrionidae

Kornbjalla - Tribolium_castaneum

Kornbjalla. 3,5 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Upprunnin í hitabeltislöndum, útbreidd um heim allan.

Ísland
Hefur fundist á nokkrum stöðum, í Reykjavík, Hafnarfirði, á Akranesi, við Laugarvatn og Ísafjarðardjúp.

Lífshættir
Kornbjalla finnst innanhúss. Bæði fullorðnar bjöllur og lirfur nærast á mjölvöru af flestu tagi, bæði unninni og heilum fræjum. Ertur og baunir eru einnig á matseðlinum, kryddvörur og þurrkaðir ávextir og flest það sem skápurinn með bökunarvörunum hefur upp á að bjóða. Tegundin er hitakær, með kjörhita um eða yfir 30°C, æxlast ekki undir 18°C og deyr jafnvel út af sjálfu sér ef hitastig fer svo langt niður. Hún er afar frjósöm við kjörhita og fjölgar sér hratt jafnvel við stofuhita. Í tilraun sem gerð var við stofuhita næstum tuttugufaldaðist fjöldinn á einum mánuði.

Almennt
Kornbjalla fannst fyrst hérlendis árið 1933 en hefur átt erfitt uppdráttar. Hún telst því ekki alvarlegt meindýr hjá okkur, en í einstöku tilvikum hefur hún þó náð sér nokkuð vel á strik. E.t.v. finnst hún helst í kjölfar þess að sýktir mjölfarmar berast til landsins. Kornbjalla er rauðbrún eða kastaníurauð á lit og líkist mjög sterkjubjöllu (T. confusum). Hún þekkist frá henni á því að þrír ystu liðir fálmara mynda keilu sem aðgreinist frá öðrum liðum.

Heimildir

Åkerlund, M. 1991. Ängrar – finns dom ...? Om skadeinsekter i museer och magasin. Naturhistoriska riksmuseet og Svenska museiföringen, Stokkhólmi. 207 bls.

Geir Gígja 1939. Nýjar skordýrategundir fyrir Ísland. Skýrsla um Hið ísl. náttúrufræðifélag 1937–38: 36–38.

Larsson, S.G. & Geir Gígja 1959. Coleoptera 1. Synopsis. Zoology of Iceland III, Part 46a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 218 bls.

Mourier, H. 1995. Husets dyreliv. G.E.C. Gads Forlag A/S, Kaupmannahöfn. 223 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allar bjöllur | Allar pöddur | Íslenska fánan

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í húsum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica