Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Grasvefari (Eana osseana) í Surtsey, algengasta fiðrildi Íslands. © Erling Ólafsson

Sterkjubjalla - Tribolium confusum (Jacquelin du Val, 1863)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Coleoptera Ætt: Tenebrionidae

Sterkjubjalla - Tribolium confusum

Sterkjubjalla. 3,5 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Upprunnin í hitabeltislöndum, útbreidd um heim allan.

Ísland
Hefur fundist í Reykjavík, Mosfellsbæ og á Akureyri.

Lífshættir
Sterkjubjalla finnst innanhúss. Bæði fullorðnar bjöllur og lirfur nærast á mjölvöru af flestu tagi, einnig ertum, baunum, hnetum, þurrkuðum ávöxtum, kryddvörum, súkkulaði og jafnvel grasasöfn geta verið í hættu. Sterkjurík fæða er henni að skapi. Sterkjubjalla er hitakær, með kjörhita um 30°C og æxlast ekki undir 18°C. Þó hún verpi miklum fjölda eggja virðist henni ekki fjölga hratt nema hiti sé í hærra lagi. Í ræktunartilraun við stofuhita hafði bjöllunum fjölgað aðeins lítillega á einum mánuði. Tegundin er mun algengari í húsnæði þar sem unnið er með mjölvörur en í heimahúsum.

Almennt
Sterkjubjalla fannst fyrst í Reykjavík 1940 og hefur fundist alloft síðan. Síðar fannst hún í heimahúsi í Mosfellsbæ (2006), í mjölgeymslu alifuglabús í Reykholtsdal í Borgarfirði (2008) og á heimili á Akureyri (2009). Hún hefur ekki náð útbreiðslu á landinu svo teljandi sé og telst því ekki alvarlegt meindýr nema helst í tímabundnum tilvikum. E.t.v. tengist hún að einhverju leyti sýktum mjölförmum sem kunna að berast til landsins. Sterkjubjalla er rauðbrún á lit og líkist kornbjöllu (T. castaneum), þekkist frá henni á því að þrír ystu liðir fálmara aðgreinast ekki greinilega frá öðrum liðum.

Heimildir

Åkerlund, M. 1991. Ängrar – finns dom ...? Om skadeinsekter i museer och magasin. Naturhistoriska riksmuseet og Svenska museiföringen, Stokkhólmi. 207 bls.

Larsson, S.G. & Geir Gígja 1959. Coleoptera 1. Synopsis. Zoology of Iceland III, Part 46a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 218 bls.

Mourier, H. 1995. Husets dyreliv. G.E.C. Gads Forlag A/S, Kaupmannahöfn. 223 bls.

©Erling Ólafsson, 25. nóvember 2009



Allar bjöllur | Allar pöddur | Íslenska fánan




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í húsum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica