Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Laukbobbar (Oxychilus alliarius) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Hveitibjalla - Tribolium destructor (Uyttenboogaart, 1933)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Coleoptera Ætt: Tenebrionidae

Hveitibjalla - Tribolium destructor

Hveitibjalla. 5 mm. ©EÓHveitibjalla - Tribolium destructorHveitibjalla. 5 mm. ©EÓ
Hveitibjalla - Tribolium destructorHveitibjalla, lirfur. 9 mm. ©EÓ
[Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
Talin upprunnin í hitabelti Afríku en hefur að líkindum borist víða um heim.

Ísland
Í híbýlum víða um land nema á suðaustanverðu landinu.

Lífshættir
Bæði fullorðnar bjöllur og lirfur nærast á mjöli af ýmsu tagi, brauði, makkarónum, fræjum, eggjadufti, þurrmjólk svo eitthvað sé nefnt, einnig dauðum skordýrum. Þær leggja sér þó ekki til munns baunir eða ertur. Hveitibjalla nær að þroska 3–4 kynslóðir á ári. Kjörhitinn er 28°C og við 13°C hættir hún að æxlast. Fjölgun er hröð við bestu aðstæður þar sem hvert kvendýr verpir um 1000 eggjum á æviskeiði sínu, 5–10 á sólarhring. Fullorðnar bjöllur geta lifað í allt að þrjú ár og þraukað mánuðum saman án næringar.

Almennt
Hveitibjalla er meindýr í híbýlum okkar og er rösk að spilla mjölvöru sem hún kemst í. Sér til varnar gefur hún frá sér illa þefjandi gulan vökva (lysol). Ef hún er snert með fingurgómi verður áleitin lyktin viðloðandi á fingrinum í nokkurn tíma á eftir og má þekkja tegundina á því. Sýkt mjölvara lyktar á sama hátt. Hveitibjalla er bæði dekkri og stærri en ættingjar hennar sömu ættkvíslar.

Heimildir

Åkerlund, M. 1991. Ängrar – finns dom ...? Om skadeinsekter i museer och magasin. Naturhistoriska riksmuseet og Svenska museiföringen, Stokkhólmi. 207 bls.

Larsson, S.G. & Geir Gígja 1959. Coleoptera 1. Synopsis. Zoology of Iceland III, Part 46a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 218 bls.

Mourier, H. 1995. Husets dyreliv. G.E.C. Gads Forlag A/S, Kaupmannahöfn. 223 bls.

©Erling Ólafsson, 29. september 2010


Allar bjöllur | Allar pöddur | Íslenska fánan




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í húsum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica