Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Holugeitungsdrottning (Vespula vulgaris), óvelkominn landnemi. © Erling Ólafsson

Knattlodda - Armadillidium depressum (Brandt, 1833)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Malacostraca Ættbálkur: Isopoda Ætt: Armadillidiidae

Knattlodda - Armadillidium depressum

Knattlodda. 15 mm. ©EÓKnattlodda - Armadillidium depressumKnattlodda í varnarstöðu. ©EÓ
[Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
Bretland, Frakkland og Ítalía. Án efa er tegundina að finna víðar í Evrópu.

Ísland
Einn fundarstaður, Sólheimar í Grímsnesi.

Lífshættir
Knattlodda finnst einkum á áhrifasvæðum manna, í görðum og óræktarlandi svo og í kringum byggingar. Hún nærist á rotnandi plöntuleifum. Komi styggð að henni ver hún sig með því að rúlla sér upp í kúlu.

Almennt
Knattlodda fannst í veitingaskála á Sólheimum í Grímsnesi 4. júlí 2009. Það var óvænt þar sem tegundin er suðlæg og lifir næst okkur í SV-Bretlandi þar sem hún finnst í umhverfi sterklega undir áhrifum manna. Það fer þó vart á milli mála að aðstæður á Sólheimum henta knattloddu ágætlega og er því ekkert því til fyrirstöðu að hún hreiðri þar um sig til frambúðar í því umhverfi sem starfsemin býður upp á. Knattlodda er stórvaxin tegund gráloddu, allt að 20 mm löng, og mun stærri en aðrar tegundir sömu ættkvíslar. Bakskildirnir eru mjög hvelfdir, gljáandi, gráir með ljósum blettum. Afturendinn er rúnnaður, álmurnar tvær ummyndaðar í þríhyrnulagaðar plötur sem skaga ekki aftur úr.

Heimildir

Oliver, P.G. & C.J. Meechan 1993. Woodlice. Synopses of the British Fauna (New Series) 49. The Linnean Society of London. 135 bls.

©Erling Ólafsson, 16. september 2009

Öll krabbadýr | Allar pöddur | Íslenska fánan


Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í húsum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica