Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Ertuyglu (Melanchra pisi), átvagl í náttúrunni. © Erling Ólafsson

Skemmukönguló - Tegenaria atrica (C.L. Koch, 1843)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Arachnida Ættbálkur: Araneae Ætt: Agelinidae

Skemmukönguló - Tegenaria atrica

Skemmukönguló, 14 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Palearktísk tegund. Gjörvöll Evrópa, algeng í N-Evrópu; N-Afríka og austur til M-Asíu. Einnig innflutt til N-Ameríku þar sem hún hefur náð bólfestu.

Ísland
Höfuðborgarsvæðið, þ.e. Reykjavík, Kópavogur, Garðabær og Hafnarfjörður suður í Straumsvík, einnig Hveragerði, Selfoss, Kirkjubæjarklaustur og Akureyri.

Lífshættir
Skemmukönguló finnst einungis innanhúss hér á landi eins og í nágrannalöndunum, en hún lifir utanhúss á suðlægari slóðum. Hana er einna helst að finna í vöruskemmum og á vörulagerum og í tengslum við innflutning á varningi. Hefur einnig fundist í kjöllurum og utan við gróðurhús. Skemmuköngulær finnast við þessar aðstæður allt árið um kring en flestar þó að síðla sumars og að haustlagi. Á þeim tíma finnast kynþroska karldýr í mestum mæli en kynþroska kvendýr sjást hins vegar allt árið.

Almennt
Skemmukönguló er ein fjögurra stórvaxinna köngulóa sem er náskyld húsaköngulónni okkar sem er miklum mun minni. Þessar stóru tegundir eru hver annarri líkar og áttuðu menn sig því lengi vel ekki á því að um fleiri en eina stórvaxna tegund af þessu tagi væri að ræða. Löngum var talið að einungis væri um að ræða tegundina fragtkönguló (Tegenaria saeva). Elsta eintak skemmuköngulóar sem varðveitt er í safni Náttúrufræðistofnunar Íslands fannst í verslun í Reykjavík 1980.

Skemmuköngulær berast til landsins reglulega með varningi og eru flestar sem hér finnast að öllum líkindum þannig til komnar. Þó er afar líklegt að tegundin hafi náð hér bólfestu í vöruskemmum og jafnvel víðar. Hún hefur til dæmis fundist í nokkrum mæli utan við gróðurhús í Hveragerði og í verksmiðju á Selfossi.

Skemmukönguló er fráleitt auðgreind frá fragtkönguló, né heldur öðrum tegundum ættkvíslarinnar, og grunur leikur jafnvel á að blöndun geti átt sér stað milli tegundanna tveggja. Allar tegundir þessarar ættkvíslar (Tegenaria) eru dökkbrúnar á lit, með ljósbrúnna mynstri bæði á bol og fótum, lappalangar og viðbragðsfljótar. Tegundirnar verða ekki aðgreindar með vissu nema með ítarlegum rannsóknum á þreifurum karldýra, sem gegna grundvallarhlutverki við mök, og á kynfærum kvendýranna. Skemmukönguló gerir sér trektlaga vef í skúmaskotum sem er ekki límborinn. Ef bráð þvælist inn á vefinn er hún gripin með áhlaupi.

Heimildir

Ingi Agnarsson 1996. Íslenskar köngulær. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 31. 175 bls.

Wikipedia. Tegenaria atrica. http://en.wikipedia.org/wiki/Tegenaria_atrica [skoðað 1.9.2010]

 

©Erling Ólafsson, 22. september 2010.


Allar köngulær | Allar pöddur | Íslenska fánan

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í húsum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica