Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Skemmukönguló (Tegenaria atrica ), nýr landnemi í birgðageymslum. © Erling Ólafsson

Skápalús - Liposcelis decolor (Pearman, 1925)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Psocoptera  Ætt: Liposcelidae

Skápalús - Liposcelis decolor

Skápalús, 1 mm. ©EÓ [Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Í öllum heimsálfum.

Ísland
Skráðir fundarstaðir eru á Suður-, Vestur- og Norðurlandi, en fastlega má gera ráð fyrir að skápalús finnist í híbýlum um land allt.

Lífshættir
Skápalús finnst alfarið innanhúss hér á landi, ekki síst í eldri húsum. Hún er stundum í miklum fjölda við hagstæð skilyrði, t.d. í matarhirslum þar sem dimmt er og rakastig hærra en æskilegt er og framboð gott af mjölryki og sveppþráðum. Raki undir gólflistum dregur einnig til sín skápalýs, svo og rakar gluggakistur þar sem málning er tekin að flagna. Náttúrugripir hafa aðdráttarafl, einnig gömul rykfallin blöð og bækur. Í suðlægari löndum lifir skápalús utanhúss, í rotnandi plöntuleifum í skógarbotnum, rökum sem þurrum, í mauraþúfum, hreiðrum fugla og bælum nagdýra svo dæmi séu tekin.

Almennt
Tegundir ættkvíslarinnar Liposcelis eru allnokkrar í nágrannalöndum okkar og erfiðar í greiningu. Skápalús gekk hér lengstum undir fræðiheitinu Liposcelis divinatorius sem nú er talið samheiti  fyrir L. decolor. Í raun hefur í seinni tíð ekki verið úr því skorið hvort L. decolor sé í raun rétt heiti á tegundina hérlendis.

Skápalús er minnsta ryklúsin í híbýlum okkar. Það getur reynst erfitt að koma auga á hana nema þar sem margar koma saman og allt er á iði. Hana má auðveldlega aðgreina frá öðrum hérlendum tegundum á því að hún er tiltölulega fótstutt og lærleggur afturfóta áberandi gildur.

Í gömlum húsum kann að reynast erfitt að fyrirbyggja skápalýs eða aðrar ryklýs enda er nokkuð víst að þær leynast í flestum eldri húsum. Hins vegar má reyna að draga úr fjölda þeirra með því að uppræta aðstæðurnar sem þeim henta.

Heimildir

Fristrup, B. 1942. Copeognatha. Zoology of Iceland III, Part 41. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 4 bls.

Geir Gígja 1944. Meindýr í húsum og gróðri og varnir gegn þeim. Prentsmiðjan Hólar hf, Reykjavík. 235 bls.

Svensson, B.W. & K. Hall. 2010. Nationalnyckeln till Sveriges flora och fauna. Stövslendor. Psocoptera. ArtDatabnken, SLU, Uppsala. 204 bls.

©Erling Ólafsson, 29. september 2010.

 


Allar ryklýs | Allar pöddur | Íslenska fánan

 

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í húsum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica