Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Skemmukönguló (Tegenaria atrica ), nýr landnemi í birgðageymslum. © Erling Ólafsson

Ylskotta - Thermobia domestica (Pachard, 1873)

Fylking: Arthropoda  Flokkur: Insecta  Ættbálkur: Thysanura  Ætt: Lepismatidae

Ylskotta - Thermobia domestica

Ylskotta. 12 mm. ©EÓ

 

[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla

Útbreitt um heim allan. 

Ísland
Aðeins á höfuðborgarsvæðinu; Reykjavík, Hafnarfjörður.

Lífshættir
Ylskotta lifir alfarið innanhúss hér á landi eins og almennt á norðlægum slóðum. Hún er mjög hitakræf, en kjörhiti hennar er 37°C og æskilegt rakastig 76–85%. Hún er því mjög staðbundin í húsum við ofna eða heitavatnslagnir í kyndiklefum. Lágmarkshiti sem ylskotta fæst þrifist við er 25°C, en hún gerir heldur minni kröfur til raka en frænka hennar alkunna silfurskottan (Lepisma saccharina). Í nágrannalöndum okkar þrífst hún einna best í bakaríum og eldhúsum veitingahúsa, þar sem boðið er upp á kjöraðstæður. Ylskotta nærist á flestu sem inniheldur sykrur og sterkju, einnig prótínríkri fæðu, pappír, bókbandi og ýmsu tilfallandi. Yfirleitt veldur hún þó ekki teljandi skaða, telst frekar til óþurftar með nærveru sinni. Æxlunarhraði stjórnast af aðstæðum.

Við rétt hitastig (32–41°C) fara kvendýr að verpa  1,5 til 4,5 mánaða gömul og verpa allt að 200 eggjum á lífsskeiði sínu. Egg klekjast að 12–13 dögum liðnum. Þroskaferlið tekur því 2–4 mánuði sem þýðir nokkrar kynslóðir á ári. Ylskotta fjölgar sér því hratt við kjöraðstæður.

Almennt
Ylskotta fannst fyrst hér á landi árið 1983, í eldhúsi á tannlæknastofu í Brautarholti í Reykjavík. Tíu árum síðar finnst hún aftur í sama húsakjarna við Skipholt, en þangað hafði meindýraeyðir verið til kallaður til að vinna á silfurskottum. Síðan hefur ylskotta fundist víða í Reykjavík og nýlega í Hafnarfirði (2011). Hún er því eflaust komin til að vera í húsum okkar.

Ylskotta líkist silfurskottu, en er þó ívið stærri og grófgerðari, auk þess mun hærðari. Einnig er hún flikrótt, ekki eins jafnlit silfurgrá á lit og stalla hennar silfurskottan.

Heimildir

Åkerlund, M. 1991. Ängrar – finns dom ...? Om skadeinsekter i museer och magasin. Naturhistoriska riksmuseet og Svenska museiföringen, Stokkhólmi. 207 bls.

Erling Ólafsson 1996. Athyglisverð skordýr: Ylskotta. Náttúrufræðingurinn 65: 194.

Fauna Europaea. Thermobia domestica. http://www.faunaeur.org/full_results.php?id=91568 [skoðað 12.10.2011]

Mourier, H. 1995. Husets dyreliv. G.E.C. Gads Forlag A/S, Kaupmannahöfn. 223 bls.

Wikipetia. Firebrat. http://en.wikipedia.org/wiki/Firebrat [skoðað 12.10.2011] 

©Erling Ólafsson, 12. október 2011.

 

Allar kögurskottur | Allar pöddur | Íslenska fánan

 

 


Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í húsum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica