Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Skógbursta, fer fjölgandi með hlýnandi loftslagi. © Erling Ólafsson

Húsmotti - Hofmannophila pseudospretella (Stainton, 1849)

Fylking: Arthropoda  Flokkur: Insecta  Ættbálkur: Lepidoptera  Ætt: Oecophoridae

Húsmotti - Hofmannophila pseudospretella

Húsmotti. 12 mm. ©EÓ

 

[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla

Um heim allan, en talin upprunninn í Asíu.

Ísland
Sunnanvert landið, víða frá Borgarfirði austur í Öræfi; óvissa ríkir um aðra landshluta en hefur fundist á Akureyri og Reyðarfirði.

Lífshættir
Húsmotti lifir alfarið innanhúss hér á landi, í híbýlum og gripahúsum. Hann er einna algengastur á gömlum sveitabýlum. Finnst annars í kjöllurum gamalla húsa og háaloftum þar sem gamalt dót hefur safnast fyrir óhreyft. Sækir einnig í matvæli í matarbúrum og korngeymslur gripahúsa. Lirfurnar eru einkar fjölhæfar í fæðuvali. Til að gefa innsýn í fjölbreyttan fæðukostinn má nefna mjöl- og kornvöru af öllu tagi, þurrkaðar plöntuleifar, kartöflur, þurrkaða ávexti, gæludýrafóður, hundakex, ullar- og skinnavörur, stoppuð húsgögn, skinnband á bókum, korktappa á vínflöskum, uppstoppuð dýr, dauð skordýr. Hér ríkir því ekki aldeilis matvendni. Að þessu upptöldu má ljóst vera að húsmotti hefur á sér stimpil skaðvalds.

Húsmotti flýgur allt árið eins og háttur er hjá fiðrildum sem lifa innanhúss. Á sumrin sést hann gjarnan utanhúss í kringum hús þar sem hann á sér uppeldisstöðvar. Ekki er þó líklegt að hann nái að fjölga sér úti, þó dæmi séu um það á sunnanverðum Norðurlöndum, en þar fjölgar húsmotti sér í fuglshreiðrum. Sennilega gerir hann það hér á landi í hreiðrum í hlöðum og gripahúsum.

Fiðrildin eru nokkuð vör um sig. Þegar styggð kemur að þeim skjótast þau burt, láta sig jafnvel falla niður sem dauð væru og smokra sér í felur. Mökun á sér stað innan sólarhrings frá því að skriðið er úr púpu og kvendýrin verpa eggjum sínum um tólf tímum síðar. Það fer því enginn tími til spillis. Frjósemin er auk þess mikil því kvendýr verpir um 600 eggjum. Klaktími eggja og þroskatími annarra stiga fer eftir hita og raka. Sem dæmi má gefa að egg klekjast á 42 dögum við 13°C og tíu dögum við 25°C. Lirfurnar þurfa allmikinn raka og leggjast í hvíld ef rakastig fer undir kröfumörk og geta beðið þannig í marga mánuði. Annars nær lirfa fullum vexti á 145 dögum við 13°C og á 70 dögum við 25°C. Hún púpar sig inni í dökkum mjóum spunahjúp. Fiðrildi skríður svo úr púpu eftir 56 daga við 13°C en 16 daga við 25°C. Þroskaferlið frá eggi til fiðrildis getur sem sagt tekið alllangan tíma og næst því aðeins ein kynslóð á ári.

Almennt
Húsmotti er án efa gamall í hempunni hér á landi og gæti þess vegna hafa borist hingað með fyrstu landnámsmönnum. Um það er þó minnst vitað. Hann á augljóslega auðveldara uppdráttar á landinu sunnanverðu en í norðlægari sveitum. Það er ekki ólíklegt að tegundin finnist samt í byggðum bólum um land allt, þó ekki liggi fyrir betri upplýsingar um það.

Húsmotti er sérstök tegund og á sér enga nána ættingja. Hann er eina tegund sinnar ættkvíslar (Hofmannophila) og talinn verðskulda það. Hann hefur bronsgyllta vængi. Á framvængjum eru nokkrir litlir dökkir dílar, að grunni til tveir samhliða einn þriðja fjarlægðar frá bol og einn stakur tvo þriðju fjarlægðarinnar. Oft má einnig greina díla eða yrjur á utanverðum vængnum. Hreistrið er viðkvæmt og verða vængirnir því oft máðir ef fiðrildin hafa þröngvað sér innan um drasl í geymslum. Lirfurnar eru alhvítir ormar með dökkan haus eins og flestar tegundir innanhússfiðrilda.

Heimildir

Åkerlund, M. 1991. Ängrar – finns dom ...? Om skadeinsekter i museer och magasin. Naturhistoriska riksmuseet og Svenska museiföringen, Stokkhólmi. 207 bls.

Geir Gígja 1944. Meindýr í húsum og gróðri og varnir gegn þeim. Prentsmiðjan Hólar hf, Reykjavík. 235 bls.

Wikipedia. Hofmannophila pseudospretella. http://en.wikipedia.org/wiki/Hofmannophila_pseudospretella [skoðað 4.1.2012]

Wolff, N.L. 1971. Lepidoptera. Zoology of Iceland III, Part 45. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 193 bls.

©Erling Ólafsson, 4. janúar 2012.

 

Öll fiðrildi | Allar pöddur | Íslenska fánan

 

 


Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í húsum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica