Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Skógbursta, fer fjölgandi með hlýnandi loftslagi. © Erling Ólafsson

Gestamotti - Endrosis sarcitrella (Linnaeus, 1758)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Lepidoptera Ætt: Oecophoridae

Gestamotti - Endrosis sarcitrella

Gestamotti. 8 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Um heim allan.

Ísland
Í byggð um land allt.

Lífshættir
Gestamotti lifir alfarið innanhúss. Hann finnst einkum í gömlum híbýlum, gripahúsum og korngeymslum á sveitabæjum, einnig í birgðastöðvum dreifingaraðila. Fiðrildin eru á ferli allt árið. Þau eru tiltölulega skammlíf, lifa aðeins í fáeina daga við stofuhita en lengur þar sem svalara er og þrífast ágætlega í óhituðum húsakynnum. Þroskatíminn ræðst af hitastigi. Sem dæmi má nefna að egg klekjast á 23 dögum við 13°C en sex dögum við 25°C. Þannig geta á einu ári þroskast 1,5–5 kynslóðir. Lirfurnar nærast á allskyns plöntufæðu og kornvöru, einnig sveppum og dauðum smádýrum, jafnvel gömlum fötum og bókum og leifum í fuglshreiðrum. Þær þurfa mikinn raka, helst um 90%, grafa göng í umhverfi sitt og klæða þau með silkiþráðum.

Almennt
Gestamotti hefur einnig gengið undir heitinu gestafiðrildi. Hann er eitt þeirra fiðrilda í húsum sem sameiginlega kallast mölfiðrildi og er ein algengasta tegund þeirra. Hann er algengari til sveita og í minni byggðalögum en í borgarumherfi. Gestamotti er skaðvaldur í mjölvöru og verður því til óþurftar þar sem hann kemur sér fyrir. Auðþekktur er hann á hvítum haus og frambol. Á góðviðrisdögum sést gestamottinn stundum á flögri utanhúss, þó sjaldan fjarri húsum.

Heimildir

Åkerlund, M. 1991. Ängrar – finns dom ...? Om skadeinsekter i museer och magasin. Naturhistoriska riksmuseet og Svenska museiföringen, Stokkhólmi. 207 bls.

Erling Ólafsson & Hálfdán Björnsson 1997. Fiðrildi á Íslandi 1995. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 32. 136 bls.

Geir Gígja 1944. Meindýr í húsum og gróðri og varnir gegn þeim. Prentsmiðjan Hólar hf, Reykjavík. 235 bls.

Mourier, H. 1995. Husets dyreliv. G.E.C. Gads Forlag A/S, Kaupmannahöfn. 223 bls.

Wolff, N.L. 1971. Lepidoptera. Zoology of Iceland III, Part 45. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 193 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Öll fiðrildi | Allar pöddur | Íslenska fánan

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í húsum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica