Nýir landnemar
Þegar líða tók á 20. öldina fór að bera á tegundum smádýra sem voru að ná fótfestu á landinu með hlýnandi loftslagi. Flestar þeirra eru vandræðalausar og jafnvel áhugaverðar viðbætur í fátæklega fánuna en einnig má finna tegundir sem margir kjósa að vera lausir við og geta jafnvel ógnað gamalgrónum þegnum í fánunni. Nýlegir landnemar eru hér dregnir fram til að vekja á þeim athygli þó þá sé einnig að finna í öðrum flokkum.

