Flóðbytta - Grammotaulius nigropunctatus (Retzius, 1783)
Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Trichoptera Ætt: Limnephilidae
![]() |
|
Flóðbytta. 20 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka] |
Útbreiðsla
Mestöll Evrópa allt norður til N-Skandinavíu.
Ísland
Frekar sjaldgæf á landinu sunnanverðu, frá Saurbæ í Dölum austur í Öræfi, mjög sjaldgæf á Norðausturlandi; Kaldakinn, Kelduhverfi.
Lífshættir
Flóðbytta finnst í votlendi við vötn og tjarnir. Lirfur eru í lygnum, gróðurríkum tjörnum og nærast með því að skrapa þekjuvef af vatnaplöntum. Þær byggja um sig hulstur úr löngum plöntubútum, t.d. stráum af störum. Flóðhulstra flýgur frá því snemma sumars og fram á haust; þekktur flugtími 9.6.–13.9.
Almennt
Flóðbytta er ein stærsta vorflugan hérlendis og það sjaldgæf að sjaldnast sjást nema einstök dýr á flögri. Hún finnst eingöngu á láglendi. Af vorflugu að vera er hún auðþekkt sökum stærðar sinnar, einnig á dökku strikmerki nálægt enda á afturvæng.
Heimildir
Fristrup, B. 1942. Neuroptera and Trichoptera. Zoology of Iceland III, Part 43–44. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 23 bls.
Gísli Már Gíslason 1978. Íslenskar vorflugur (Trichoptera). Náttúrufræðingurinn 48: 62–72.
Gísli Már Gíslason 1979. Identification of Icelandic caddis larvae, with descriptions of Limnephilus fenestratus (Zett.) and L. picturatus McL. (Trichoptera: Limnephilidae, Pgryganeidae). Ent. scand 10: 161–176.
Gísli Már Gíslason 1981. Distibution and habitat preferences of Icelandic Trichoptera. Í: G.P. Moretti (ritstj.), Proc. of the 3rd Int. symp. on Trichoptera. Series ent. 20: 99–109.
©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009
Allar vorflugur | Allar pöddur | Íslenska fánan

