Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Laukbobbar (Oxychilus alliarius) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Randasveifa - Helophilus pendulus (Linnaeus, 1758)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Diptera Ætt: Syrphidae

Randsveifa - Helophilus pendulus

Randasveifa. 13 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Gjörvöll Evrópa, frá Skandinavíu suður til Miðjarðarhafs, Rússland frá Kólaskaga suður til Krímskaga, austur um Síberíu til Kyrrahafs; Færeyjar.

Ísland
Algeng á láglendi um land allt en fágæt á miðhálendinu þar sem hún hefur fundist í Þjórsárverum og Grágæsadal á Brúaröræfum.

Lífshættir
Randasveifa er algengust í blómlendi við lífríkar tjarnir og díki, í gróðurríkum skurðum með kyrrstæðu vatni og miklu groti. Hún laðast einnig að garðtjörnum með rotnandi laufum og pollum við fjóshauga. Flugurnar sækja í blóm. Lirfurnar alast upp í vatni og nærast á rotnandi plöntuleifum. Randasveifur sjást frá vori til hausts, byrjun maí og fram í október, en mest ber á þeim yfir sumarmánuðina þegar sólar nýtur við.

Almennt
Randasveifa er einkar falleg með gulu og svörtu litmynstri sínu, langröndóttum frambol og flekkóttum afturbol. Af þeim sökum er hún stundum mistekin fyrir geitung, þó litmynstrið sjálft sé fjarri því að vera líkt á þessum fjarskyldu skordýrum.

Heimildir

Erling Ólafsson 1988. Könnun á smádýrum í Hvannalindum, Fagradal og Grágæsadal. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 5. 86 bls.

Erling Ólafsson 2000. Landliðdýr í Þjórsárverum. Rannsóknir 1972–1973. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 40. 159 bls.

Jensen, J.-K. 2008. Navna og skrásetingarlisti til blómflugurnar Syrphidae í Føroyum. Jens-Kjeld Jensen, sérprent 2008. 3 bls.

Nielsen, P., O. Ringdahl & S.L. Tuxen 1954. Diptera 1 (exclusive of Ceratopogonidae and Chironomidae). Zoology of Iceland III, Part 48a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 189 bls.

Peck, L.V. 1988. Family Syrphidae. Bls. 11–230 í Á. Soós (ritstj.), Catalogue of Palaearctic Diptera 8. Syrphidae – Conopidae. Eslevier, Amsterdam. 363 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allar tvívængjur | Allar pöddur | Íslenska fánan




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica