Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Varmasmiður (Carabus nemoralis Müller) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Birkikemba - Heringocrania unimaculella (Zetterstedt, 1839)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Lepidoptera Ætt: Eriocraniidae

Birkikemba - Heringocrania unimaculella

Birkikemba. 6 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
M- og N-Evrópa. Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir.

Ísland
Suðvesturland; Reykjavík, Kópavogur, Hveragerði og Ölfus.

Lífshættir
Trjárækt og húsagarðar með birki (Betula pubescens) er kjörlendi birkikembu. Hún skríður úr púpu í fyrrihluta apríl og finnst á flugi nokkuð fram í maí. Flugtími er því mjög skammur. Fiðrildin verpa á birkið. Þegar lirfurnar klekjast grafa þær sig inn í laufblöðin og éta þau innan frá. Ekki er vitað hvenær þær púpa sig en tegundin liggur í vetrardvala á púpustigi.

Almennt
Birkikemba fannst fyrst í Hveragerði 2005 og var þá þegar orðin algeng í trjáræktarreit undir Hamrinum og nálægum görðum. Þaðan hefur hún dreifst um Ölfusið allt austur að Nátthaga. Hún fannst svo í Fossvogi í Reykjavík 2007 þar sem henni hefur fjölgað hratt í Fossvogskirkjugarði og skógræktarstöðinni. Í apríl 2009 fannst hún uppi á Kópavogshálsinum nálægt Borgarholti. Það er illur fengur af þessum nýliða í íslensku fánunni því skaðsemi er veruleg af hans völdum á birki í görðum.

Heimildir

Karsholt O. & J. Razowski 1996. The Lepidoptera of Europe. A Distributional Checklist. Apollo Books, Stenstrup. 380 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009.


Öll fiðrildi | Allar pöddur | Íslenska fánan




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica