Sytrubytta - Limnephilus sparsus (Curtis, 1834)
Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Trichoptera Ætt: Limnephilidae
![]() |
|
Sytrubytta. 13 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka] |
Útbreiðsla
Evrópa til N-Skandinavíu; Bretlandseyjar, Færeyjar, Turkestan, Kamschatka.
Ísland
Um land allt, algeng á landinu sunnanverðu, sjaldgæf á hálendinu.
Lífshættir
Sytrubytta finnst í námunda við tjarnir og lækjarsytrur frekar í þurru landi en í votlendisflákum. Lirfur hafa hérlendis fundist í hægrennandi lækjarsytrum og nærast með því að skrapa vatnaplöntur. Annars staðar eru þær hins vegar þekktar úr kyrrstæðu vatni. Hulstrin sem lirfurnar byggja utan um sig eru gerð úr stuttum, víxluðum plöntubútum. Sytruhulstra flýgur frá því snemma sumars og langt fram eftir hausti; þekktur flugtími 9.6.–26.10.
Almennt
Sytrubytta er meðalstór og dæmigerð íslensk vorfluga. Þó algeng sé á sunnanverðu landinu ber ekki mikið á henni á flögri. Hins vegar kemur hún meira en aðrar vorflugur í ljósgildrur sem ætlaðar eru til fiðrildaveiða, en það bendir til að þess að hún sé e.t.v. mest á flugi þegar skyggja tekur. Hún er t.d. langalgengust vorflugna í afla ljósgildra sem staðsettar eru nálægt gróðurríkum skurðum með rennandi vatni í Fljótshlíð. Það bendir til uppeldisstöðva í skurðunum. Sytrubytta verður ekki með vissu greind frá öðrum vorflugum sömu ættkvíslar nema með skoðun undir góðri stækkun.
Heimildir
Fristrup, B. 1942. Neuroptera and Trichoptera. Zoology of Iceland III, Part 43–44. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 23 bls.
Gísli Már Gíslason 1978. Íslenskar vorflugur (Trichoptera). Náttúrufræðingurinn 48: 62–72.
Gísli Már Gíslason 1981. Distibution and habitat preferences of Icelandic Trichoptera. Í: G.P. Moretti (ritstj.), Proc. of the 3rd Int. symp. on Trichoptera. Series ent. 20: 99–109.
©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009
Allar vorflugur | Allar pöddur | Íslenska fánan


