Taðáni - Lumbricus rubellus (Hoffmeister, 1843)

Fylking: Annelida Flokkur: Oligochaeta Ættbálkur: Haplotaxida Ætt: Lumbricidae

Taðáni - Lumbricus rubellus

Taðáni. 80 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Norðurhvel allt, í Evrópu til nyrstu héraða Skandinavíu; innfluttur til Indlandsskaga, S-Afríku, Nýja-Sjálands og víðar.

Ísland
Láglendi um land allt.

Lífshættir
Taðáni finnst í rökum, næringarríkum jarðvegi í margskonar gróðurríkum gróðurlendum, graslendi, blómlendi, mólendi og birkiskógum, einnig lúpínubreiðum og algengur í húsagörðum, t.d. í rotnandi laufi og safnhaugum. Sækir í húsdýraskít í haga.

Almennt
Taðáni er með algengustu ánamöðkum á Íslandi og ein þeirra tegunda sem garðeigendur sjá helst við garðyrkjustörf. Hann er tiltölulega stór og gildur og litarsterkur, fjólublár og ljósrauður.

Heimildir

Backlund, H.O. 1949. Oligochaeta 1. Lumbricidae. Zoology of Iceland IV, Part 20a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 15 bls.

Bengtson, S.-A., A. Nilsson, S. Nordström & S. Rundgren 1975. Habitat selection of lumbricids in Iceland. Oikos 26: 253–263.

Bjarni E. Guðleifsson & Rögnvaldur Ólafsson 1981. Athugun á ánamöðkum í túnum í Eyjafirði.

Hólmfríður Sigurðardóttir 1994. Ánamaðkar. Náttúrufræðingurinn 64: 139–148.

Hólmfríður Sigurðardóttir 2004. Ánamaðkar og niðurbrot sinu í lúpínubreiðum. Náttúrufræðingurinn 72: 13–19.

Sims, R.W. & B.M. Gerard 1985. Earthworms. Synopses of the British Fauna (New Series) 31. The Linnean Society of London. 171 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allir ánar | Allar pöddur | Íslenska fánan



Til baka, , Prenta greinina

 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: