Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Skógbursta, fer fjölgandi með hlýnandi loftslagi. © Erling Ólafsson

Járnsmiður - Nebria rufescens (Ström, 1768)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Coleoptera Ætt: Carabidae

Járnsmiður - Nebria rufescens

Járnsmiður. 10 mm. ©EÓJárnsmiður - Nebria rufescensJárnsmiður. 10 mm. ©EÓ
[Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
Umhverfis norðurhvel. Norðurlönd nema allra syðst og áfram austur eftir norðurslóðum Rússlands og Síberíu, Novaya Zemlya, hálendi Mið-Evrópu, hálendi Skotlands, skosku eyjarnar, Færeyjar, Grænland, norðurslóðir N-Ameríku.

Ísland
Mjög algengur á láglendi um land, strjálli á miðhálendinu, en hefur þó fundist þar víða.

Lífshættir
Járnsmiður finnst við margskonar aðstæður, gjarnan á lítt grónum bökkum tjarna og straumvatna og þar sem jarðvegur er opinn og rakur. Hann veiðir önnur smádýr sér til matar.

Almennt
Járnsmiður er norræn tegund en samt miklu algengari á láglendi en hálendi. Á hálendinu finnst hann einna helst á jarðhitasvæðum. Hann er almennt vel þekkt bjalla hér á landi og heiti hans flestum tiltækt. Hann á sér nokkra áþekka ættingja á Íslandi sem er gjarnan við hann ruglað. Járnsmiður hefur granna og langa leggi, ýmist svarta eða rauða á lit, og er frár á fæti.

Heimildir

Larsson, S.G. & Geir Gígja 1959. Coleoptera 1. Synopsis. Zoology of Iceland III, Part 46a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 218 bls.

Lindroth, C.H., 1985. The Carabidae (Coleoptera) of Fennoscandia and Denmark. Fauna entomologica scandi-navica 15, part 1. E.J. Brill/Scandinavian Science Press Ltd, Leiden, Kaupmannahöfn. 225 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allar bjöllur | Allar pöddur | Íslenska fánan

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica