Silakeppur - Otiorhynchus arcticus (O. Fabricius, 1780)
Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Coleoptera Ætt: Curculionidae
![]() |
|
Silakeppur. 7 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka] |
Útbreiðsla
N-Evrópa suður til Þýskalands og Póllands og austur til Rússlands; Írland, Bretland, Suðureyjar, Hjaltlandseyjar, Færeyjar, A- og V-Grænland.
Ísland
Algengur um land allt, frá fjöru til hæstu fjalla.
Lífshættir
Kjörlendi silakepps eru melar, sandar og annað lítt gróið land, allt frá sendnum sjávarbökkum til fjallamela. Hann forðast grósku og bleytu. Bjöllurnar fara á kreik á nóttinni en leynast á daginn undir steinum og lausum hlutum, t.d. rekaviðarspýtum á ströndum. Þær naga laufblöð fjölmargra plöntutegunda og lirfurnar leggjast á ræturnar. Lífsferill er ekki fyllilega þekktur en gæti spannað tvö ár sem væntanlega fer eftir ríkjandi hitastigi og aðstæðum. Silakeppur fjölgar sér með kynæxlun, þ.e. karldýr eru til staðar. Bæði lirfur og bjöllur leggjast í vetrardvala. Bjöllur hafa fundist á kreiki frá miðjum apríl og fram eftir október.
Almennt
Silakeppur er mjög algeng og útbreidd bjalla á landinu og flestir hafa heiti hans á takteinum. Hins vegar notast það heiti gjarnan jafnt á þessa sem skyldar tegundir ranabjallna sem fólk gerir ekki greinamun á, en silalegur gangurinn skýrir heitið. Silakeppur er alsvartur á lit og gljáandi svo að á hann glittir í sólarljósi ólíkt nánum ættingjum sem eru mun mattari.
Heimildir
Larsson, S.G. & Geir Gígja 1959. Coleoptera 1. Synopsis. Zoology of Iceland III, Part 46a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 218 bls.
Palm, E. 1996. Nordeuropas Snudebiller. 1. De kortsnudede arter (Coleoptera: Curculionidae) – med særlig henblik på den danske fauna. Danmarks dyreliv 7. Apollo Books, Stenstrup. 356 bls.
©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009
Allar bjöllur | Allar pöddur | Íslenska fánan


