Geiruxi - Philonthus politus (Linnaeus, 1758)
Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Coleoptera Ætt: Staphylinidae
![]() |
|
Geiruxi. 11 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka] |
Útbreiðsla
Norðurhvel umhverfis jörðina, til nyrstu héraða Skandinavíu, Færeyjar; innfluttur til Nýja-Sjálands, Tasmaníu og fleiri staða á suðurslóðum.
Ísland
Láglendi um land allt.
Lífshættir
Geiruxi liggur í dvala sem fullorðinn og er á ferli frá lokum mars og fram í október. Meira sést af honum fyrri og seinni hluta sumars en um hásumarið en það er uppeldistími lirfanna. Tegundin heldur sig fyrst og fremst í námunda við manninn og hans athafnasemi. Bæði fullorðnar bjöllur og lirfur sækja í rotnandi lífrænan úrgang og gróðurleifar, t.d. húsdýraskít og safnhauga, og veiða þar önnur smádýr sér til matar.
Almennt
Geiruxi er næststærstur uxanna með fallega gljáandi olíuslikju á stuttum skjaldvængjunum. Hann er útbreiddur en ekki mjög algengur, mest á ferli á heitum og sólríkum vordögum. Þá kann hann að slæðast inn í hús sér og öðrum til armæðu því þangað á hann ekkert erindi og fær þar ekki lifað til lengri tíma.
Heimildir
Larsson, S.G. & Geir Gígja 1959. Coleoptera 1. Synopsis. Zoology of Iceland III, Part 46a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 218 bls.
©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009
Allar bjöllur | Allar pöddur | Íslenska fánan

