Skrautygla - Phlogophora meticulosa (Linnaeus, 1758)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Lepidoptera Ætt: Noctuidae

Skrautygla - Phlogophora meticulosa

Skrautygla. 29 mm. ©EÓSkrautygla - Phlogophora meticulosaSkrautygla. 29 mm. ©EÓ
[Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
Evrópa norður til sunnanverðrar Skandinavíu og S-Finnlands, suður til N-Afríku, austur um Rússland til Kákasus og suður til Litlu-Asíu.

Ísland
Fundin á láglendi í öllum landshlutum nema á Vestfjarðakjálka, mjög víða á sunnanverðu landinu, frá Snæfellsnesi og austur á Firði en fáfundin á Norðurlandi.

Lífshættir
Skrautygla virðist liggja í vetrardvala bæði sem lirfa og fullorðin og fer það eftir loftslaginu þar sem hún lifir. Einnig virðist það breytilegt hve margar kynslóðir þroskast árlega. Í Danmörku er talið að kynslóðir séu jafnvel tvær á ári. Nyrst á útbreiðslusvæðinu er að líkindum bara um eina kynslóð að ræða. Yglurnar verpa að vetrardvala afloknum, lirfur vaxa upp yfir hásumarið og púpa sig síðsumars. Ný kynslóð fullorðinna skríður þá úr púpum og leggst í dvala. Skrautygla nærist á fjölmörgum jurtkenndum plöntum.

Almennt
Skrautygla er mikil flökkukind í Mið- og S-Evrópu. Fjölliðuð haustkynslóð leggst gjarnan í langferðir og berst þá m.a. út yfir Atlantshaf til Færeyja og Íslands. Tegundin sést hér á hverju ári, í mismiklum mæli þó, stundum umtalsverður fjöldi. Slík fjöldagengd hingað til lands vitnaðist fyrst haustið 1959 í Öræfum.

Á fyrri hluta árs hafa skrautyglur fundist hér frá miðjum janúar og fram eftir maí. Þegar þær berast til landsins á vorin verpa þær gjarnan, en æxlun varð fyrst staðfest hér árið 1976 er fjölmargar lirfur fundust upp úr miðjum ágúst í garðinum að Kvískerjum í Öræfum. Flestar voru að éta fjallakornblóm (Centaurea montana) og venusvagn (Aconitum napellus). Vorið 2004 fundust allnokkrar skrautyglur sem grunur lék á að hafi verið að vakna eftir vetrardvala hérlendis. Sumarið sem fylgdi fundust lirfur í birkiskógi í Skorradal. Síðan hafa fengist fleiri vísbendingar um að tegundin sé farin að festa sig í sessi hér með hlýnandi loftslagi. Fullorðin skrautygla hefur aðeins einu sinni fundist hér á miðju sumri en þær sjást að öllu jöfnu frá miðjum ágúst og fram eftir nóvember, langsamlega flestar um miðjan október.

Skrautygla er einkar falleg, minnir á visnað laufblað og mynstrið á framvæng á skorinn agatstein.

 

Heimildir

Patursson, A. & J.-K. Jensen 2002.  Nøvn til firvaldar (Lepidoptera) í Føroyum. Sérprent. 5 bls.

Erling Ólafsson & Hálfdán Björnsson 1976. Þrjú flökkufiðrildi tímgast á Íslandi. Náttúrufræðingurinn 46: 200–208.

Skou, P. 1991. Nordens Ugler. Håndbog over de i Danmark, Norge, Sverige, Finland og Island forekommende arter af Herminiidae og Noctuidae (Lepidoptera). Danmark Dyreliv 5. Apollo Books, Stenstrup. 565 bls.

Wolff, N.L. 1971. Lepidoptera. Zoology of Iceland III, Part 45. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 193 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Öll fiðrildi | Allar pöddur | Íslenska fánan

 



Til baka, , Prenta greinina

 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: