Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Grasvefari (Eana osseana) í Surtsey, algengasta fiðrildi Íslands. © Erling Ólafsson

Strandfætla - Cylindroiulus latestriatus (Curtis, 1845)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Diplopoda Ættbálkur: Juliformia Ætt: Julidae

Strandfætla - Cylindroiulus latestriatus

Strandfætla. 18 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Finnst víða um heim. Evrópa norður til Skandinavíu, með ströndum Noregs allt til Lofoten; Færeyjar, Azoreyjar, Kanaríeyjar; Asía, Ástralía, USA, Mexíkó og á stöðum í Antarktis.

Ísland
Tveir fundarstaðir; Reykjanes við Ísafjarðardjúp og Hveragerði.

Lífshættir
Kjörlendi strandfætlu hér á landi er við jarðhita. Erlendis er kjörlendi hennar með ströndum, undir rotnandi þangi, marhálmi og rekaviði, svo og á þurrum fitjum. Finnst einnig við vötn inni í landi, einkum undir reka á ströndum. Þá má nefna manngert umhverfi eins og húsagarða, safnhauga, kirkjugarða og gróðurhús. Strandfætlan lifir á rotnandi plöntuleifum.

Almennt
Strandfætla er afar fágæt hérlendis og hefur aðeins fundist tvívegis á jarðhitasvæðum. Hún fannst fyrst í allnokkrum fjölda við heitan læk á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp 29. júní 1992. Síðar fannst hún á óræktarjörð í Hveragerði 26. maí 2006. Fastlega má gera ráð fyrir strandfætlan sé með fasta búsetu í landinu og eigi eftir að finnast víðar við svipuð skilyrði. Hún er grábrún á lit, dekkri á baki en á hliðum þar sem greina má röð dökkra díla, einn á hverjum lið nema fremst og aftast. Kvendýr eru allt að 19 mm á lengd en karldýr heldur styttri. Líkamsliðir kvendýra eru allt á bilinu 40–49 og fótapör 67–91 en liðir og þar með fætur eru heldur færri á styttri karldýrunum. Strandfætla verður vart aðgreind frá náskyldri tegund, Cylindroiulus britannicus, nema með krufningu.

Heimildir

Andersson, G., B.A. Meidell, U. Scheller, J.-Å. Winqvist, M. Osterkamp Madsen, P. Djursvoll, G. Budd & U. Gärdenfors 2005. Nationalnyckeln till Sveriges flora och fauna. Mångfotingar. Myriapoda. Artdatabanken, SLU, Uppsala. 351 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allar þúsundfætlur | Allar pöddur | Íslenska fánan




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica