Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Laukbobbar (Oxychilus alliarius) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Birkirani - Strophosoma melanogrammum (Forster, 1771)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Coleoptera Ætt: Curculionidae

Birkirani - Strophosoma melanogrammum

Birkirani. 6 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Evrópa, frá Pýreneafjöllum til N-Noregs, algengastur vestan til í álfunni, innfluttur til austurstrandar N-Ameríku og Azoreyja.

Ísland
Syðst á landinu frá Hvalfirði austur í Lón.

Lífshættir
Skógar eru kjörlendi birkirana. Hann finnst bæði í villtum birkiskógum og plöntuðum barrskógum. Hann étur laufblöð og barrnálar, einnig börk, á mörgum trjátegundum. Hérlendis hefur honum einkum verið safnað af birki (Betula pubescens) en í Skandinavíu eru grenitegundir (Picea) í mestum metum. Hann étur einnig visin laufblöð á jörðu, einkum þeir árrisulu á vorin, og jafnvel blómplöntur.

Bjöllur liggja í vetrardvala og skríða fram í apríl. Þær verpa í lok maí og júní í sprungur í trjáberki og í jarðveg. Eggin klekjast á u.þ.b. tveim vikum og lirfurnar skríða ofan í jarðveginn. Þar nærast þær á rótum allskyns plantna, jafnt grasa, blómplantna og trjáa. Þær hafa fjögur þroskastig og vaxtartíminn er breytilegur. Fullþroska púpa þær sig í jarðveginum og bjöllur skríða úr púpunum þrem til fjórum vikum síðar í ágúst og skríða upp í trén til að éta þangað til þær fara í vetrardvala. Bjöllur sjást þó allt sumarið, hérlendis frá miðjum apríl og fram eftir október, en fæstar á milli kynslóða í júlí. Í ágúst koma saman bjöllur bæði af gömlu og nýju kynslóðinni. Lirfur á þriðja og fjórða stigi eiga það einnig til að leggjast í vetrardvala. Fullorðin bjalla hefur fundist lifandi innanhúss í byrjun janúar en sú gæti hafa borist inn með jólatré, jafnvel innfluttu.

Almennt
Erlendis hefur birkirani stundum valdið umtalsverðum skemmdum á barrtrjám og jafnvel hreinsað af þeim allt barr. Ekki er kunnugt um skaðsemi af þeirra völdum hér á landi enda telst birkirani tiltölulega sjaldgæfur hér. Stöku sinnum má þó hrista bjöllur af trjám í umtalsverðum fjölda. Birkirani er auðþekktur, kubbslegur og frekar lítill, með stuttan kubbslegan rana og frekar stutta fætur, gulbrúnn eða gylltur á lit með svart strik fremst á mótum skjaldvængja.

Heimildir

Larsson, S.G. & Geir Gígja 1959. Coleoptera 1. Synopsis. Zoology of Iceland III, Part 46a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 218 bls.

Palm, E. 1996. Nordeuropas Snudebiller. 1. De kortsnudede arter (Coleoptera: Curculionidae) – med særlig henblik på den danske fauna. Danmarks dyreliv 7. Apollo Books, Stenstrup. 356 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allar bjöllur | Allar pöddur | Íslenska fánan




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica