Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Grasvefari (Eana osseana) í Surtsey, algengasta fiðrildi Íslands. © Erling Ólafsson

Birkiglyrna - Wesmaelius nervosus (Fabricius, 1793)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Neuroptera Ætt: Hemerobiidae

Birkiglyrna - Wesmaelius betulina

Birkiglyrna. 9 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Evrasía; N- og M-Evrópa allt suður til Spánar og Korsíku, Madeira, Sibiría; Færeyjar, Grænland.

Ísland
Nokkuð algeng á láglendi um land allt, en fágæt á hálendinu; Þjórsárver, Vesturöræfi.

Lífshættir
Birkiskógar og kjarr, víðikjarr, hrísmóar og húsagarðar. Birkiglyrnur finnast allt sumarið frá vori til hausts. Þekktur flugtími er frá seint í apríl til loka september. Talið er að um tvær kynslóðir sé að ræða yfir sumarið. Lirfurnar nærast á blaðlúsum.

Almennt
Birkiglyrna dregur heitið af stórum hvelfdum augum og kjörlendinu. Yfirleitt fer lítið fyrir henni en hún sést helst á einkennandi léttu flugi á lygnum kvöldum í birkiskógum. Hún er auðþekkt á stórum vængjum með þéttriðnu æðaneti sem aðfelldir mynda ris yfir bolnum. Stundum má finna lirfur í nokkrum fjölda á birkilaufum, sjá þær stinga löngum framstæðum og holum kjálkum sínum inn í blaðlýsnar og tæma úr þeim innvolsið. Hver og ein lirfa fargar fjölda blaðlúsa á uppvaxtarskeiðinu og á birkiglyrna því drjúgan þátt í að halda blaðlúsum í skefjum.

Heimildir

Fristrup, B. 1942. Neuroptera and Trichoptera. Zoology of Iceland III, Part 43–44. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 23 bls.

Böcher, J. 2001. Insekter og andre smådyr – i Grønlands fjeld og ferskvand. Forlaget Atuagkat, Nuuk. 302 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allar netvængjur | Allar pöddur | Íslenska fánan




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica