Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Varmasmiður (Carabus nemoralis Müller) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Víðirani - Dorytomus taeniatus (Fabricius, 1781)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Coleoptera Ætt: Curculionidae

Víðirani - eo_Dorytomus_taeniatus

Víðirani. 5 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Evrópa til nyrstu slóða og Síbería.

Ísland
Láglendi um land allt og Smjörtungufjall við Kárahnjúka.

Lífshættir
Kjörlendi víðirana er í víðimóum, kjarrlendi með víðirunnum og plöntuðum skógarreitum með víði og öspum (Populus). Hann lifir á víðitegundum (Salix) og hefur einnig verið safnað af alaskaösp (P. trichocarpa). Bjöllurnar naga þekjuvefi laufblaða sem detta út í gagnsæjum blettum af völdum þeirra en lirfurnar grafa sig inn í rekla og jafnvel laufblöð líka. Víðirani liggur vetrardvalann á fullorðinsstigi. Bjöllurnar fara að sjást upp úr miðjum apríl en flestar í maí, feta sig upp í víðirunnana og út á nýskriðna rekla. Þar makast kynin og kvendýrin verpa eggjum í reklana þar sem lirfurnar vaxa upp í göngum inni í kjarna. Þær ná fullum vexti á miðju sumri, falla þá til jarðar og púpa sig í jarðveginum. Bjöllur fara síðan að skríða úr púpum í ágúst og sjást allt fram í miðjan október.

Almennt
Víðirani er mun algengari á sunnanverðu landinu en fyrir norðan og á einum stað hefur hann fundist uppi í hálendisbrún í nágrenni Kárahnjúka. Annars fer hann ekki inn á hálendið. Hann sést í mestum mæli á vorin þegar víðir blómgast, í maí og fram eftir júní. Víðirani er frekar smávaxin hægfara ranabjalla, bolurinn tiltölulega langur, nær einlitur brúnn á lit. Raninn er mjór og áberandi langur.

Heimildir

Larsson, S.G. & Geir Gígja 1959. Coleoptera 1. Synopsis. Zoology of Iceland III, Part 46a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 218 bls.

Guðmundur Halldórsson, Oddur Sigurðsson & Erling Ólafsson 2002. Dulin veröld. Smádýr á Íslandi. Mál og Mynd, Reykjavík. 171.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allar bjöllur | Allar pöddur | Íslenska fánan




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica