Hagakönguló - Haplodrassus signifer (C.L. Koch, 1839)
Fylking: Arthropoda Flokkur: Arachnida Ættbálkur: Araneae Ætt: Gnaphosidae
![]() |
|
Hagakönguló. 8 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka] |
Útbreiðsla
Norðurhvel jarðar, beggja vegna Atlantshafs; gjörvöll Evrópa, Azoreyjar, Asía austur til Mongólíu og suður til Palestínu og Íraks, Grænland.
Ísland
Algeng á láglendi um land allt, en aðeins fundin á einum stað á hálendinu, þ.e. í Arnarfellsbrekku suðaustan við Hofsjökul.
Lífshættir
Hagakönguló finnst í margskonar þurrlendi og nokkuð deigu landi, m.a. graslendi, mólendi, opnu kjarri og skóglendi. Kynþroska karlar sjást í maí og júní og kvendýr með eggjasekki sem þau bera með sér í kjölfar þess í júlí. Ungviði leggst í vetrardvala. Líklegt þykir að þroskaferlið geti tekið einhver ár.
Almennt
Þó hagakönguló sé algeng fer ekki mikið fyrir henni þar sem hún læðist um niðri í gróðursverði. Hún er felugjörn og snögg að koma sér undan ef styggð kemur að. Það er helst að rekast á hana undir steinum í móum og valllendi. Hún er meðalstór könguló, einlit dökkbrún og leynist því vel í gróðursverðinum.
Heimildir
Brændegård, J. 1958. Araneida. Zoology of Iceland III, Part 54. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 113 bls.
Erling Ólafsson 2000. Landliðdýr í Þjórsárverum. Rannsóknir 1972–1973. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 40. 159 bls.
Ingi Agnarsson 1996. Íslenskar köngulær. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 31. 175 bls.
©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009
Allar köngulær | Allar pöddur | Íslenska fánan


