Grálodda - Porcellio scaber (Latreille, 1804)
Fylking: Arthropoda Flokkur: Malacostraca Ættbálkur: Isopoda Ætt: Porcellionidae
![]() |
|
Grálodda. 12 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka] |
Útbreiðsla
Talin eiga uppruna að rekja til V-Evrópu en hefur dreifst og náð fótfestu víða um heim. Mestöll Evrópa til N-Skandinavíu, Færeyjar. N-Ameríka, barst til Grænlands á 18. öld en hvarf.
Ísland
Láglendi um land allt, einkum í strandhéruðum.
Lífshættir
Grálodda finnst við breytilegar aðstæður en raki er undirstaða þess að hún fái þrifist. Hún heldur sig gjarnan við sjó, undir sjóreknum viði ofan við fjöru og á rökum klettum. Þrífst vel í röku umhverfi á jarðhitasvæðum, einnig undir rusli og fúaspýtum á athafnastöðum manna, í húsagörðum undir steinum, hellum og öðru lauslegu í húsagörðum, jafnvel í fúnum gólffjölum í kjöllurum gamalla húsa og garðskúra. Hún nærist á rotnandi plöntuleifum og blautum fúaspýtum.
Almennt
Grálodda er algengasta og útbreiddasta loddan eða grápaddan, eins og þær kallast einnig, á Íslandi. Sama á við í nágrannalöndunum. Auk þess er hún ólíkt flestum hinna tegundanna óháð mannlegu umhverfi þó hún kunni vel að færa sér það í nyt. Við kjöraðstæður, t.d. við volgar laugar á jarðhitasvæðum safnast þær stundum saman í miklum fjölda sem má sjá tvístrast til allra átta þegar þær eru ónáðaðar með því að lyfta ofan af þeim hlífiskildinum.
Grálodda er oftast einlit steingrá á lit, stundum með ljósari blettum, yfirborðið vörtótt. Hún rúllar ekki bolnum upp í kúlu sér til varnar.
Heimildir
Hansen, J. & J.-K. Jensen 2006. Distribution of Woodlice (Isopoda: Oniscoidea) in the Faroe Islands. Fróðskaparrit 54 bók 2006: 172–176.
Meinertz, T. 1938. Isopoda Terrestria. Zoology of Iceland III, Part 28. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 11 bls.
Oliver, P.G. & C.J. Meechan 1993. Woodlice. Synopses of the British Fauna (New Series) 49. The Linnean Society of London. 135 bls.
©Erling Ólafsson, 25. nóvember 2009.
Öll krabbadýr | Allar pöddur | Íslenska fánan


