Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Varmasmiður (Carabus nemoralis Müller) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Skuggasnigill - Arion subfuscus (Draparnaud, 1805)

Fylking: Mollusca Flokkur: Gastropoda Ættbálkur: Pulmonata  Ætt: Arionidae

Skuggasnigill - Arion subfuscatus

Skuggasnigill, 50 mm. ©EÓSkuggasnigill - Arion subfuscatusSkuggasnigill, 50 mm. ©EÓ

[Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
Mestöll Evrópa nema e.t.v. allra syðst, N-Spánn, N-Ítalía, austur til Úkraínu og Rússlands til Kákasus. Hefur einnig borist til annarra heimshluta.

Ísland
Láglendi um land allt og á miðhálendinu við Hvítárvatn.

Lífshættir
Eins og flestra snigla er háttur heldur skuggasnigill sig á rökum stöðum. Að degi til dylst hann á skuggsælum stöðum, í laufi og gróðurleifum, undir spýtum og öðru lauslegu. Hann skríður fram á kvöldin og nóttinni til að athafna sig og er mest áberandi þegar blautt er á jörðu. Hann nærist einna helst á þörunga- og sveppaskán sem vex m.a. á spýtum og lurkum en leggst einnig á stærri sveppi og ýmsar plöntur og getur skaðað mat- og skrautjurtir í görðum okkar. Einnig leggst hann á hræ og dauða snigla.

Almennt
Skuggasnigill er algengur í húsagörðum, einkum sunnan lands. Í votviðrasömum kvöldum upp úr miðju sumri má oft sjá umtalsverðan fjölda skuggasnigla skríðandi í blómabeðum og yfir blautar stéttar og plön. Skuggasnigill á sér nokkra náskylda ættingja sömu ættkvíslar (Arion) og eru tegundirnar ekki auðgreindar hver frá annarri.

Skuggasnigill getur orðið nokkuð stór, eða allt að 6–7 cm langur þegar hann teygir úr sér, þó ekki komist hann í hálfkvisti við stóru frændurna svartsnigil og spánarsnigil. Skuggasniglar eru allbreytilegir á lit og auk þess getur sami einstaklingur breytt um lit hægt og bítandi. Þeir geta verið dökkgulbrúnir, kanilbrúnir eða dökkgrábrúnir, stundum með appelsínugulum blæ. Sniglarnir eru jafnan dekkri á baki en á hliðum. Margir líta skuggasnigil óttablöndnum augum og telja hann ungviði spánarsnigils. Reyndar er ekki sjálfgefið að létt sé að greina á milli skuggasnigils með rauðgulum litblæ og ungs spánarsnigils.

Heimildir

Mandahl-Barth, G. 1938. Land and Freshwater Mollusca. Zoology of Iceland IV, Part 65. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 31 bls.

Pfleger, V. & J. Chatfield 1988. A Guide to Snails of Britain and Europe. Hamlyn, England. 216 bls.

Quick, H.E. 1960. British slugs (Pulmonata; Testacellidae, Arionidae, Limacidae). Bulletin of The British Museum (Natural History), Zoology 6: 1–226.

©Erling Ólafsson, 25. nóvember 2009.


Allir sniglar | Allar pöddur | Íslenska fánan





Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica