Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Skógbursta, fer fjölgandi með hlýnandi loftslagi. © Erling Ólafsson

Brandygla - Euxoa ochrogaster (Guenée, 1852)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta  Ættbálkur: Lepidoptera  Ætt: Noctuidae

Brandygla - Euxoa ochrogaster

Brandygla, lengd aftur á vængenda 20 mm. ©EÓ
[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Miðbik Rússlands austur til Kamchatka og Japans, norðanverð N-Ameríka frá austri til vesturs. Afar fágæt á Norðurlöndum, fáein eintök fundin í Svíþjóð í lok 19. aldar og Finnlandi og áður finnsku Karelíu1931–1935.

Ísland
Um land allt en algengust á landinu suðaustanverðu. Fáeinir fundarstaðir á miðhálendinu.

Lífshættir
Brandygla flýgur frá byrjun júlí til loka september. Mestur er fjöldinn um miðjan ágúst. Hún finnst í hvers konar þurrlendi, ekki síst í sendnu landi. Hún verpir síðsumars, eggin klekjast út næsta vor og lirfurnar vaxa upp fyrri hluta sumars. Þær halda sig efst í jarðveginum en koma upp á yfirborð einkum að næturlagi til að nærast. Þær nærast á margskonar plöntum, á rótum, laufblöðum og stönglum. Þær hafa m.a. fundist á græðisúru (Plantago major) og lirfur hafa sést hakka í sig klóelftingar (Equisetum arvense) þegar þær vaxa upp úr jarðvegi óharðnaðar. Óvenjulegt er að skordýr leggi sér efltingar til munns. Einnig hefur brandygla lagst á kartöflugrös (Solanum tuberosum) í uppvexti og alaskalúpínu (Lupinus nootkatensis) í nýgræðum.

Almennt
Það eru mikil áraskipti af brandyglu. Í sumum árum birtist umtalsverður fjöldi fiðrilda sem svo dettur verulega niður á milli. Þetta verður ekki útskýrt á nokkurn hátt en sníkjuvespur gætu átt þar nokkurn þátt. Grunur leikur á að sníkjuvespan Ophion nigricans sækist eftir lirfum brandyglunnar þar sem þær athafna sig berskjaldaðar og aðgengilegar á yfirborði jarðvegs. Í brandygluárum kunna lirfurnar að valda skaða á gróðri. Slíkt hefur vitnast á kartöfluekrum í Þykkvabæ og nýsáningum alaskalúpínu á Hafnarsandi við Þorlákshöfn.

Brandygla er með afar skýru litmynstri á framvængjum, með ljósa hring- og nýrnalaga bletti á dökkum fleti framan til, og minna litirnir gjarna á dökkbröndóttan kött eða kú. Af því dregur tegundin íslenska heitið. Það er þó nokkuð breytilegt hve dökk fiðrildin eru en mynstrið dylst sjaldnast. Lirfurnar eru mjög dökkar, grábrúnar eftir baki, með dekkri hliðarbeltum og mjórri ljósri hliðarrák. Íslenskar brandyglur eru mjög eftirsóttar af fiðrildasöfnurum í nágrannalöndunum enda ómögulegt að nálgast þær þar um slóðir.

Heimildir

Guðmundur Halldórsson. Brandygla - vaxandi vandamál. Landgræðsla ríkisins. http://landbunadur.rala.is/landbunadur/wglgr.nsf/key2/lann74he6x.html [skoðað 11.12.2009]

Erling Ólafsson & Hálfdán Björnsson 1997. Fiðrildi á Íslandi 1995. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 32. 136 bls.

Skou, P. 1991. Nordens Ugler. Håndbog over de i Danmark, Norge, Sverige, Finland og Island forekommende arter af Herminiidae og Noctuidae (Lepidoptera). Danmarks Dyreliv 5. Apollo Books, Stenstrup. 565 bls.

Sigurgeir Ólafsson 1988. Brandygla í kartöflugörðum. Freyr 6, mars 1988, bls. 124–141.

Wolff, N.L. 1971. Lepidoptera. Zoology of Iceland III, Part 45. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 193 bls.

©Erling Ólafsson, 11. desember 2009.

 


Öll fiðrildi | Allar pöddur | Íslenska fánan

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica