Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Holugeitungsdrottning (Vespula vulgaris), óvelkominn landnemi. © Erling Ólafsson

Haugáni - Eisenia fetida (Savigny, 1826)

Fylking: Annelida Flokkur: Oligochaeta  Ættbálkur: Haplotaxida  Ætt:Lumbricidae

Haugáni - Eisenia fetida

Haugáni, 30 mm. EÓ©
[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Talinn af palearktískum uppruna en finnst nú á tempruðum svæðum víða um heiminn einkum í tengslum við ræktun og mannabyggð.

Ísland
Nokkrir fundarstaðir á suðvestanverðu landinu, frá Vogum á Reykjanesskaga norður á Mýrar í Borgarfirði.

Lífshættir
Rakasækinn ánamaðkur sem leitar í hrúgur af rotnandi plöntuleifum og skíthauga. Skríður gjarnan inn í húsgrunna gamalla húsa og jafnvel inn í laskaðar klóaklagnir. Berst stundum eftir þeim alla leið upp í salernisskálar. Haugáni þrífst vel við lágt sýrustig (pH).

Almennt
Haugáni er að öllum líkindum tiltölulega sjaldgæfur hér á landi. Hann fannst fyrst við ylrækt í Mosfellssveit 1931. Nokkur óvissa ríkir um tegundina og er lítið um staðfesta fundi fyrr en á allra síðustu árum. Þó eru spurnir og sögur af ánamöðkum sem fundist hafa í salernisskálum í híbýlum á höfuðborgarsvæðinu en slíkum fundum hefur verið lítt fylgt eftir fyrr en á seinni árum. Líkast til hefur þó verið um haugána að ræða. Hann hefur nú verið staðfestur í salernisskálum í Vogum á Vatnsleysuströnd (2007), Hafnarfirði (2008) og Reykjavík (2010). Að auki hafa haugánar fundist á tveim stöðum á Mýrum í Borgarfirði (2006), í súru mýrlendi þar sem sinueldar höfðu geisað í vetrarlok. Haugánar sem ná að skríða upp í salernisskálar eru vísbending um að lagnir séu farnar að gefa sig. Stundum hafa slíkir ormar valdið tilhæfulausum áhyggjum finnenda af heilsufari sínu!

Heimildir

Backlund, H.O. 1949. Oligochaeta 1. Lumbricidae. Zoology of Iceland IV, Part 20a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 15 bls.

Sims, R.W. & B.M. Gerard 1985. Earthworms. Synopses of the British Fauna (New Series) 31. The Linnean Society of London. 171 bls.

©Erling Ólafsson, 6. janúar 2010.

 

Allir ánar | Allar pöddur | Íslenska fánan


 

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica