Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Ertuyglu (Melanchra pisi), átvagl í náttúrunni. © Erling Ólafsson

Laukbobbi - Oxychilus alliarius (Miller, 1822)

Fylking: Mollusca Flokkur: Gastropoda Ættbálkur: Pulmonata Ætt: Oxychilidae

Laukbobbi - Oxychilus alliarius

Laukbobbi, 6 mm. EÓ©[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
NV-Evrópa norður til sunnanverðrar Skandinavíu, austur til Póllands og sennilega suður til Frakklands; Bretlandseyjar.

Ísland
Fundinn á láglendi um land allt, allvíða á landinu sunnanverðu en strjált norðan til.

Lífshættir
Erlendis finnst laukbobbinn í skóglendi og graslendi, oft í miklum fjölda á súrum jarðvegi. Hérlendis er hann algengastur í manngerðu umhverfi, í húsagörðum, kringum gróðurhús o.s.frv., í laufi á jörðinni, undir steinum, spýtum og öðru lauslegu.

Almennt
Þó laukbobbi hafi fundist allvíða telst hann varla algengur. Hann er einn nokkurra náskyldra og nauðalíkra tegunda með brúnleitan, gljáandi, flatan og snúðlaga kuðung. Snigillinn sjálfur er nær svartur á lit. Lifandi laukbobbar eru auðgreindir á því að þeir gefa frá sér lauklykt við áreiti. Af því dregur hann heiti sín, bæði fræðiheitið og hið íslenska.

Heimildir

Árni Einarsson 1977. Íslenskir landkuðungar. Náttúrufræðingurinn 47: 65–128.

Mandahl-Barth, G. 1938. Land and Freshwater Mollusca. Zoology of Iceland IV, Part 65. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 31 bls.

Pfleger, V. & J. Chatfield 1988. A Guide to Snails of Britain and Europe. Hamlyn, England. 216 bls.

©Erling Ólafsson, 6. janúar 2010.

 


Allir sniglar | Allar pöddur | Íslenska fánan




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica