Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Ertuyglu (Melanchra pisi), átvagl í náttúrunni. © Erling Ólafsson

Mýrabobbi - Oxyloma elegans Risso, 1826

Fylking: Mollusca Flokkur: Gastropoda Ættbálkur: Pulmonata  Ætt: Succineidae

Mýrabobbi - Oxyloma elegans

Mýrabobbi, 8 mm. ©EÓMýrabobbi - Oxyloma elegansMýrabobbi, 8 mm. ©EÓ [Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
Mýrabobbi er útbreiddur um N- og M-Evrópu, finnst einnig á Grænlandi.

Ísland
Láglendi allt umhverfis landið.

Lífshættir
Mýrabobbi finnst ávallt í bleytu, í mýrum, bleytuvilpum með  hófsóleyjum (Caltha palustris) og á blautum mosa- og þörungavöxnum klettum þar sem vatn vætlar um, oft við vatnsborðið á bökkum linda og dýja. Dvelur sjaldnast ofan í vatni.

Almennt
Mýrabobbi er algengur snigill á Íslandi og einn fárra tegunda sem tengjast fersku vatni. Það var lengi vel óljóst hver tegundin var í raun og veru og var jafnvel talin tegund af n-amerískum uppruna sem einnig fannst á Grænlandi. Síðar var farið að telja þá íslensku og grænlensku mýrabobbaba til undirtegundar af O. elegans (eða O. pfeifferi eins og tegundin var lengstum nefnd í heimildum).

Heimildir

Árni Einarsson 1977. Íslenskir landkuðungar. Náttúrufræðingurinn 47: 65–128.

Böcher, J. 2001. Insekter og andre smådyr – i Grønlands fjeld og ferskvand. Forlaget Atuagkat, Nuuk. 302 bls.

Mandahl-Barth, G. 1938. Land and Freshwater Mollusca. Zoology of Iceland IV, Part 65. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 31 bls.

Pfleger, V. & J. Chatfield 1988. A Guide to Snails of Britain and Europe. Hamlyn, England. 216 bls.

Wikipedia. Oxyloma elegans http://en.wikipedia.org/wiki/Oxyloma_elegans [skoðað 3.2.2010]

 

©Erling Ólafsson, 3.2.2010.

 

Allir sniglar | Allar pöddur | Íslenska fánan


 


Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica