Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Ertuyglu (Melanchra pisi), átvagl í náttúrunni. © Erling Ólafsson

Kolasmiður - Pterostichus adstrictus Eschscholtz, 1823

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Coleoptera  Ætt: Carabidae

Kolasmiður - Pterostichus_adstrictus

Kolasmiður, 11 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Norðanverð Skandinavía, Noregur, Svíþjóð og Finnland en sjaldgæfari sunnar í löndunum; nyrst á Bretlandseyjum, Færeyjar. N-Ameríka frá Alaska til Labrador. Heimkynnin eru fyrst og fremst í norðanverðu barrskógabeltinu.

Ísland
Algengur á láglendi um land allt, á miðhálendinu einungis fundinn á Hveravöllum og í Fremstaveri sunnan Bláfells við Kjalveg.

Lífshættir
Kolasmiður finnst í margskonar þurrlendi og raklendi, í túnum og graslendi, gjarnan með rofnum moldar- og malarblettum, einnig í skógarbotnum. Bæði lirfur og fullorðnar bjöllur veiða minni smádýr sér til lífsviðurværis. Fullorðnar bjöllur hafa sést á ferli á tímabilinu frá mánaðamótum apríl/maí til mánaðamóta október/ nóvember. Lirfur vaxa upp fyrri hluta sumars og fram í ágúst og ný kynslóð fullorðinna bjallna leggst í vetrardvala.

Almennt
Kolasmiður er með algengari smiðum á láglendi hérlendis. Hann er á ferli jafnt að degi sem nóttu og því ber töluvert á honum enda er hann með stærri smiðum, ívið stærri en járnsmiður, sem honum er gjarnan ruglað saman við. Útlitsmunur er þó töluverður. Kolasmiður er einlitur svartur á lit með frekar matta áferð, ekki gljáandi. Auk þess er hann lappastyttri.

Heimildir

Larsson, S.G. & Geir Gígja 1959. Coleoptera 1. Synopsis. Zoology of Iceland III, Part 46a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 218 bls.

Lindroth, C.H., 1985. The Carabidae (Coleoptera) of Fennoscandia and Denmark. Fauna Entomologica Scandinavica 15, part 1. E.J. Brill/Scandinavian Science Press Ltd, Leiden, Kaupmannahöfn. 225 bls.

 

©Erling Ólafsson, 3. mars 2010.


Allar bjöllur | Allar pöddur | Íslenska fánan


Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica