Laugakönguló - Pirata piraticus (Clerck, 1757)
Fylking: Arthropoda Flokkur: Arachnida Ættbálkur: Araneae Ætt: Lycosidae
![]() |
|
Laugakönguló, ókynþroska dýr. 5 mm. ©EÓ [Smellið á mynd til að stækka] |
Útbreiðsla
Umhverfis norðurhvel. Gjörvöll Evrópa, Rússland austur að Yenisei í Síberíu, austur til Sýrlands og Palestínu; Færeyjar. N-Ameríka; Bandaríkin, Kanada, Nýfundnaland.
Ísland
Um land allt, jafnt á láglendi sem hálendi en alfarið bundin jarðhita á miðhálendinu. Algengari sunnanlands en norðan.
Lífshættir
Laugakönguló er rakasækin og hitakær. Hún finnst hvarvetna við heitar laugar þar sem hún veiðir gjarnan bráð sína úti á þörungabreiðum sem fljóta á laugunum. Finnst einnig í barnamosamýrum þar sem vatn stendur hátt, einnig á gljám með grunnu yfirborðsvatni sem hitnar auðveldlega upp í sólskini.
Almennt
Laugakönguló er mjög áhugaverð tegund og gaman er að fylgjast með veiðiferðum hennar út á flotþörungana í heitu laugunum. Þar situr gjarnan aragrúi af hveraflugum (Scatella tenuicosta f. thermarum) sem eru henni auðveld bráð. Laugakönguló var lengstum talin bundin við heitar laugar hérlendis en hefur á seinni árum fundist í auknum mæli fjarri jarðhita. Við rannsóknir á áhrifum sinubruna í Mýrasýslu sumarið 2007 kom í ljós að tegundin var algeng í mýrlendinu. Það vakti enn frekar athygli að hún var til muna meira áberandi þar sem hafði brunnið, væntanlega vegna þess að þar opnaðist svörðurinn þegar sinan hvarf og svört askan sem eftir lá drakk í sig sólarhitann.
Laugakönguló er dæmigerð tegund hnoðaköngulóarættar og verður ekki með vissu greind frá öðrum tegundum nema með skoðun á kynfærum hennar.
Heimildir
Brændegård, J. 1958. Araneida. Zoology of Iceland III, Part 54. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 113 bls.
Ingi Agnarsson 1996. Íslenskar köngulær. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 31. 175 bls.
©Erling Ólafsson, 15. mars 2010.
Allar köngulær | Allar pöddur | Íslenska fánan

