Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Laukbobbar (Oxychilus alliarius) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Túnfeti - Xanthorhoe decoloraria (Esper, 1806)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta  Ættbálkur: Lepidoptera  Ætt: Geometridae

Túnfeti - Xanthoria_decoloraria

Túnfeti, karldýr. 13 mm. ©EÓTúnfeti - Xanthoria decolorariaTúnfeti, kvendýr. 12 mm. ©EÓ [Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
Norðlægar slóðum umhverfis norðurhvel. N-Evrópa suður til Póllands, Þýskalands og Bretlandseyja, fjalllendi M-Evrópu, Færeyjar; austur um Síberíu til Kamchatka og Sakhalin; N-Ameríka.

Ísland
Túnfeti finnst um land allt. Hann er algengur á láglendi en sjaldgæfur á miðhálendinu þó hann finnist þar víða.

Lífshættir
Túnfeti finnst í margskonar gróðurlendum en einna algengastur er hann í raklendu graslendi, t.d. við skurði í túnum, einnig í graslendum skógarbotnum. Hann lifir á margskonar plöntum, t.d. maríustakk (Alchemilla vulgaris), blágresi (Geranium sylvaticum), möðrum (Galium), haugarfa (Stellaria media), krossfífli (Senecio vulgaris) og steinbrjóti (Saxifraga) svo dæmi séu tekin. Fiðrildin hafa óvenju langan flugtíma eða frá mánaðamótum maí/júní til loka ágúst en aðaltíminn er í seinni hluta júní og fram eftir júlí. Stöku sinnum sjást túnfetar síðar en þeir kunna að vera af 2. kynslóð. Lirfur vaxa upp síðsumars, leggjast í vetrardvala og púpa sig að honum loknum á vorin.

Almennt
Túnfeti er með algengari fiðrildum hérlendis og flýgur í mestum mæli á kyrrum kvöldum, einnig að degi til og hrekst þá gjarnan upp þegar styggð kemur að honum. Hann er auðþekktur frá öðrum fetum nema helst mýrfeta. Túnfeti er meðalstór feti, framvængir ljósgráir með vel afmörkuðu dekkra grábrúnu belti yfir framvængina miðja. Karlinn er með áberandi fjaðraða fálmara en kvendýrið ekki. Auk þess er kvendýrið oftast daufara á lit. Á framrönd framvængja, nálægt vængendum, má greina tvö strikmerki, nokkurs konar semikommu, sem aðgreinir túnfeta frá mýrfeta en sá síðarnefndi hefur lítinn brúnan ferningslaga blett á sambærilegum stað.

Heimildir

Erling Ólafsson & Hálfdán Björnsson 1997. Fiðrildi á Íslandi 1995. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 32. 136 bls.

Skou, P. 1984. Nordens Målere. Håndbog over de danske og fennoskandiske arter af Drepanidae og Geometridae (Lepidoptera). Danmarks Dyreliv 2. Fauna Bøger & Apollo Bøger, Kaupmannahöfn & Svendborg. 332 bls.

Wolff, N.L. 1971. Lepidoptera. Zoology of Iceland III, Part 45. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 193 bls.

©Erling Ólafsson, 28. apríl 2010.


Öll fiðrildi | Allar pöddur | Íslenska fánan

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica