Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Varmasmiður (Carabus nemoralis Müller) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Mófeti - Eupithecia satyrata (Hübner, 1813)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Lepidoptera Ætt: Geometridae

Mófeti - Eupithecia satyrata

Mófeti, 8 mm. ©EÓMófeti - Eupithecia satyrataMófeti, samlitur veðruðum girðingarstaur, 8 mm. ©EÓ
 
Mófeti - Eupithecia satyrataLirfa mófeta á blómi skarifífils, 12 mm. ©EÓ [Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
Evrópa frá Miðjarðarhafslöndum til nyrstu héraða Skandinavíu, Færeyjar, austur um Rússland til vestanverðrar Síberíu og M-Asíu austur til Tíbet.

Ísland
Algengur á láglendi um land allt þó fundarstaðir séu enn tiltölulega fáir á norðvestanverðu landinu. Ófundinn á miðhálendinu.

Lífshættir
Mófeti finnst í  gróðurríku þurrlendi við fjölbreytilegar aðstæður, t.d. í opnu valllendi, blómlendi, mólendi og kjarrlendi. Lirfurnar éta laufblöð fjölmargra plantna, t.d. vallhumals (Achillea millefolium) og möðrutegunda (Galium). Mófetinn leggst í vetrardvala á púpustigi og er með fyrstu fiðrildum að skríða úr púpum á vorin. Hann fer að fljúga í seinni hluta maí og er fjöldinn mestur í júní. Um miðjan júlí eru mófetarnir horfnir. Lirfurnar vaxa upp frá júní og fram eftir sumri. Þá púpa þær sig fyrir veturinn.

Almennt
Mófeti er eitt mest áberandi fiðrildið hér á landi í júní. Hann er þó mun algengari á landinu sunnanverðu en um landið norðanvert. Mófeti flýgur jafnt að nóttu sem degi og ylríkir sólskinsdagar hent honum vel til flugs.

Mófeti telst seint til skrautfiðrilda, einlitur, ljósgrábrúnn eða drapplitur með fíngerðum ljósari bylgjóttum þverröndum sem hverfa þegar vængir slitna með aldrinum.  Hann er smávaxinn feti, með tiltölulega mjóa og odddregna framvængi miðað við stærri feta. Hérlendis á mófeti þrjá náskylda ættingja sömu ættkvíslar sem eru allar mjög áþekkar í útliti. Það þarf glögg augu til að greina þær í sundur.

Heimildir

Erling Ólafsson & Hálfdán Björnsson 1997. Fiðrildi á Íslandi 1995. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 32. 136 bls.

Skou, P. 1984. Nordens Målere. Håndbog over de danske og fennoskandiske arter af Drepanidae og Geometridae (Lepidoptera). Danmarks Dyreliv 2. Fauna Bøger & Apollo Bøger, Kaupmannahöfn & Svendborg. 332 bls.

Wolff, N.L. 1971. Lepidoptera. Zoology of Iceland III, Part 45. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 193 bls.

©Erling Ólafsson, 1. júní 2010.


Öll fiðrildi | Allar pöddur | Íslenska fánan


 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica