Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Skógbursta, fer fjölgandi með hlýnandi loftslagi. © Erling Ólafsson

Lyngfeti - Eupithecia nanata (Hübner, 1813)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Lepidoptera  Ætt: Geometridae

Lyngfeti - Eupithecia nanata

Lyngfeti, 7 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Evrópa frá Miðjarðarhafslöndum norðanverðum norður fyrir miðbik Skandinavíu, Rússland austur til Kákasus; Bretlandseyjar, Færeyjar.

Ísland
Nokkuð algengur á láglendi víðast hvar um landið nema enn ófundinn á Vestfjarðakjálka og vestanverðu Norðurlandi. Það er líklegt til að breytast. Ófundinn á miðhálendinu nema í Esjufjöllum í Breiðamerkurjökli en þangað hefur hann e.t.v. borist með vindum neðan af láglendi.

Lífshættir
Lyngmóar og lyngi gróin grýtt holt eru kjörlendi lyngfeta en lirfurnar nærast á blómum beitilyngs (Calluna vulgaris). Fiðrildin birtast í byrjun júní, ná mestum fjölda í júlí og hverfa í fyrstu viku ágúst. Lyngfeti hefur einnig fundist í fyrstu viku október. Á suðlægari slóðum eru tvær kynslóðir fiðrilda á sumri en aðeins ein norðar á útbreiðslusvæðinu. Það á við hér á landi. Lyngfeti í október sýnir þó tilraun til annarrar kynslóðar en þá er orðið of áliðið sumars til að koma nýjum lirfum á legg. Annars vaxa lirfurnar upp seinni hluta sumars og púpa sig á haustin. Púpurnar brúa veturinn.

Almennt
Lyngfeti lætur lítið yfir sér, smávaxinn feti og lítt áberandi í sínum grábrúna lit. Hann situr oft á samlitum klöppum og kvistum og heldur gjarnan kyrru fyrir þar sem hann situr. Lyngfeti er minnstur skyldra tegunda af ættkvíslinni Eupithecia, með mjórri og odddregnari vængi en þær hinar, liturinn dekkri grábrúnn, með skýrara mynstur á framvæng, dekkra belti yfir miðjan vænginn með svörtum punkti og ljósari sauma utan við beltið.

Heimildir

Erling Ólafsson & Hálfdán Björnsson 1997. Fiðrildi á Íslandi 1995. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 32. 136 bls.

Skou, P. 1984. Nordens Målere. Håndbog over de danske og fennoskandiske arter af Drepanidae og Geometridae (Lepidoptera). Danmarks Dyreliv 2. Fauna Bøger & Apollo Bøger, Kaupmannahöfn & Svendborg. 332 bls.

Wolff, N.L. 1971. Lepidoptera. Zoology of Iceland III, Part 45. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 193 bls.

 

©Erling Ólafsson, 21. júní 2010.


Öll fiðrildi | Allar pöddur | Íslenska fánan





Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica