Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Skógbursta, fer fjölgandi með hlýnandi loftslagi. © Erling Ólafsson

Möðrufeti - Epirrhoe alternata (Müller, 1764)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta  Ættbálkur: Lepidoptera  Ætt: Geometridae

Möðrufeti - Epirrhoe alternata

Möðrufeti. 10 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Gjörvöll Evrópa, frá Miðjarðarhafi til nyrstu héraða Skandinavíu, austur eftir N- og M-Asíu til Kamchatka.

Ísland
Láglendi um land allt, algengari á landinu sunnanverðu en norðanlands, Ófundinn á miðhálendinu.

Lífshættir
Kjarrlendi og blómlendi eru kjörlendi möðrufeta og lifir hann þar á möðrum (Galium). Í Evrópu eru kynslóðir fiðrilda tvær á sumri nema nyrst þar sem aðeins ein kynslóð nær að þroskast. Fyrri kynslóð flýgur frá lokum maí og fram í byrjun júlí en sú seinni frá lokum júlí og fram til september. Lirfur hennar ná fullum þroska og púpur leggjast í vetrardvala. Hérlendis er um eina kynslóð að ræða sem fer á flug viku af júní og flýgur til loka júlí. Lirfurnar vaxa upp frá miðju sumri og púpa sig er fullum vexti er náð.

Almennt
Möðrufeti telst með fallegri fiðrildum hér á landi. Hann er auk þess algengur og áberandi á sólríkum góðviðrisdögum, ekki síst í kjarri þar sem möðrur er áberandi í undirgróðrinum. Hann er á ferð snemmsumars eins og önnur fiðrildi sem þreyja vetur á púpustigi. Möðrufeti er engum öðrum fetum líkur og því auðþekktur. Á framvængjum er litmynstrið skýrt og afgerandi. Aftan við dökka vængrót tekur við ljóst belti, þá áberandi dökkt belti yfir miðjan vænginn með bylgjóttum afturjaðri og svörtum punkti nálægt vængjaðri. Aftan við það er aftur ljóst belti en vængjaðarinn er dökkur í mismunandi brúnum og grábrúnum litum.

Heimildir

Erling Ólafsson & Hálfdán Björnsson 1997. Fiðrildi á Íslandi 1995. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 32. 136 bls.

Skou, P. 1984. Nordens Målere. Håndbog over de danske og fennoskandiske arter af Drepanidae og Geometridae (Lepidoptera). Danmarks Dyreliv 2. Fauna Bøger & Apollo Bøger, Kaupmannahöfn & Svendborg. 332 bls.

Wolff, N.L. 1971. Lepidoptera. Zoology of Iceland III, Part 45. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 193 bls.

©Erling Ólafsson, 24. júní 2010.


Öll fiðrildi | Allar pöddur | Íslenska fánan

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica