Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Ertuyglu (Melanchra pisi), átvagl í náttúrunni. © Erling Ólafsson

Jarðygla - Diarsia mendica (Fabricius, 1775)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Lepidoptera Ætt: Noctuidae

Jarðygla - Diarsia mendica

Jarðygla, 17 mm. ©EÓ

Jarðygla - Diarsia mendica

Jarðygla, 17 mm. ©EÓ[Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
Evrópa frá nyrstu héruðum suður til N-Spánar, N-Ítalíu og Balkanskaga, Færeyjar; austur um N- og M-Asíu; Síbería, Armenía, Íran.

Ísland
Mjög algeng á láglendi um land allt sjaldgæf á miðhálendinu; Þjórsárver, Vesturöræfi.

Lífshættir
Jarðygla finnst í flestum gerðum gróskumikils þurrlendis, valllendi og blómlendi, móum og kjarrlendi. Lirfurnar nærast á fjölda plöntutegunda, blómplantna, runnum og lauftrjám, jafnvel lerki og öðrum barrtrjám. Flugtími jarðyglu er langur. Fyrstu yglurnar fara að sjást viku af júní, flugtíminn er í hámarki mestallan júlí og stöku jarðyglur sjást allt fram í miðjan september. Lirfurnar vaxa upp frá júlí og fram á haust, leggjast í dvala og ljúka vextinum að vetri liðnum.

Almennt
Ekki er fjarri lagi að telja jarðyglu algengustu ygluna hérlendis. Hún er sú tegund sem kemur í fiðrildagildrur í afgerandi mestum fjölda. Jarðygla hefur verið staðin að því að valda skaða á gróðri. Má þar sem dæmi nefna skaða sem hún olli á náttúrulegum lyng- og runnagróðri í Suður-Þingeyjarsýslu 1975 og meiriháttar skemmdir á rússalerki (Larix sibirica) í plantekrum á Fljótsdalshéraði 1996 og 1997.

Jarðygla er auðþekkt á hlýjum, rauðbrúnum lit sínum. Liturinn er nokkuð mismunandi eftir einstaklingum en hver og ein jarðygla er einsleit, rauðbrún, ljósrauðbrún, dökkrauðbrún, með tveim greinilegum blettum á miðum framvæng, hringlaga og nýrnalaga. Lirfan er auðþekkt og minnir litmynstur á baki hennar einna helst á afturdekk dráttarvélar.

Heimildir

Brynjólfur Sigurjónsson 1997. Jarðyglan 1997. Verkefni unnið sumarið 1997 fyrir Héraðsskóga og Skógrækt ríkisins. 13 bls.

Erling Ólafsson & Hálfdán Björnsson 1997. Fiðrildi á Íslandi 1995. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 32. 136 bls.

Guðmundur Halldórsson, Jóhann F. Þórhallsson & Sigrún Sigurjónsdóttir 1997. Úr dagbók jarðyglu. Ársrit Skógræktarfélags Íslands 1997: 119–123.

Helgi Hallgrímsson 1977. Gróðurskemmdir á heiðum S-Þing. 1975. Týli 7: 13–15.

Patursson, A. & J.-K. Jensen 2002. Nøvn til firvaldar (Lepidoptera) í Føroyum. Sérprent. 5 bls.

Skou, P. 1991. Nordens Ugler. Håndbog over de i Danmark, Norge, Sverige, Finland og Island forekommende arter af Herminiidae og Noctuidae (Lepidoptera). Danmarks Dyreliv 5. Apollo Books, Stenstrup. 565 bls.

Wolff, N.L. 1971. Lepidoptera. Zoology of Iceland III, Part 45. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 193 bls.

©Erling Ólafsson, 30. júní 2010.


Öll fiðrildi | Allar pöddur | Íslenska fánan


Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica