Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Varmasmiður (Carabus nemoralis Müller) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Garðamiður - Patrobus atrorufus (Ström, 1768)

Fylking: Arthropoda  Flokkur: Insecta  Ættbálkur: Coleoptera  Ætt: Carabidae

Garðamiður - Patrobus atrorufus

Garðasmiður. 8 mm. ©EÓ

 

[Smellið á mynd til að stækka]
Útbreiðsla

Evrópa nema allra nyrst og syðst, austur um Síberíu til Kákasus.

Ísland
Suðurland frá Reykjanesskaga austur í Hornafjörð, einnig Reykholt og Hvanneyri í Borgarfirði.

Lífshættir
Í nágrannalöndunum eru raklendir skógarbotnar kjörlendi garðasmiðs. Það á ágætlega við hérlendis þar sem hann finnst hér einna helst í húsagörðum og ræktuðum trjálundum. Hann er rakasækinn, leitar gjarnan í rakann í rotnandi plöntuleifum, laufbingjum og safnhaugum, undir hellur og steina og annað lauslegt í blómabeðum o.s.frv. Bjöllurnar eru á ferli frá vori til hausts en æxlun á sér stað síðsumars og leggjast lirfur í vetrardvala ásamt einhverjum fullorðnum bjöllum sem kunna að birtast á veturna í hlákutíð. Garðasmiður er rándýr sem veiðir að nóttu til jafnt á lirfu- sem fullorðinsstigi.

Almennt
Garðasmiður hefur að öllum líkindum borist til landsins með mönnum á einhverju tímaskeiði. Hann fannst þó með vissu á fyrri hluta síðustu aldar. Útbreiðsla hans hér er alfarið bundin Suðurlandi og Borgarfirði á Vesturlandi. Hún kann að vera slitrótt, háð kjörlendi og flutningi með mönnum á milli staða. Hann er þó mjög algengur á mörgum stöðum, t.d. í húsagörðum á höfuðborgarsvæðinu.

Garðasmiður líkist járnsmið (Nebria gyllenhali) að vissu marki og er því gjarnan ruglað saman við hann. Hlutföllin eru þó nokkuð ólík, t.d. er garðasmiður mun fótastyttri en járnsmiður. Garðasmiður er einlitur svartur, vel gljáandi, en fætur rauðleitir. Fjallasmiður (Patrobus septentrionis) er hans nánasti ættingi og eru þeir nauðalíkir í útliti. Fjallasmiður er þó ívið stærri og mattari á skel. Auðveldast er að greina þá að með því að lyfta skjaldvængjum, en undir þeim leynast flugvængir á fjallasmið en garðasmiður er án slíkra.

Heimildir

Ground Beetles of Iceland. Patrobus atrorufus. http://www.habitas.org.uk/groundbeetles/species.asp?item=7188 [skoðað 27.6.2012]

Larsson, S.G. & Geir Gígja 1959. Coleoptera 1. Synopsis. Zoology of Iceland III, Part 46a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 218 bls.

Lindroth, C.H., 1985. The Carabidae (Coleoptera) of Fennoscandia and Denmark. Fauna Entomologica Scandinavica 15, part 1: 1–226. E.J. Brill/Scandinavian Science Press Ltd, Leiden, Kaupmannahöfn.

©Erling Ólafsson, 27. júní 2012; uppfært 13. mars 2013.

 

Allar bjöllur | Allar pöddur | Íslenska fánan


Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica