Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Ertuyglu (Melanchra pisi), átvagl í náttúrunni. © Erling Ólafsson

Hnoðuxi - Aleochara sparsa (Heer, 1839)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Coleoptera Ætt: Staphylinidae

Hnoðuxi - Aleochara sparsa

Hnoðuxi. 3,5 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Mestöll Evrópa til N-Skandinavíu og eyja í N-Atlantshafi; Mið-Asía.

Ísland
Strjálir fundarstaðir á láglendi um allt land, flestir á sunnanverðu landinu.

Lífshættir
Hnoðuxi finnst einkum við sveitabýli, ræktunarstöðvar og í húsagörðum. Hann heldur sig einkum í rotnandi gróðurúrgangi þar sem hann veiðir sér önnur smádýr til matar. Fullorðnar bjöllur liggja í vetrardvala og birtast senmma á vorin eða í mars. Þær verpa á vorin, lirfurnar smeygja sér inn í púpur tvívængna, éta innvolsið og fullvaxnar púpa þær sig inni í púpuhýði hýsilsins. Næsta kynslóð bjallna skríður úr púpum síðsumars og þær sjást á ferli fram eftir október. Minna ber því á bjöllunum um hásumarið á uppvaxtartíma ungviðis.

Almennt
Hnoðuxi er af algengri gerð uxa og sést oft skríðandi á húsveggjum nálægt safnhaugum, blóma- og matjurtabeðum. Hann er biksvartur og gljáandi, kýttur að framanverðu og með frekar kúpta skjaldvængi. Fálmarar eru tiltölulega stuttir og liðir þeirra styttri en þeir eru breiðir.

Heimildir

Larsson, S.G. & Geir Gígja 1959. Coleoptera 1. Synopsis. Zoology of Iceland III, Part 46a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 218 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allar bjöllur | Allar pöddur | Íslenska fánan



Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica