Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Holugeitungsdrottning (Vespula vulgaris), óvelkominn landnemi. © Erling Ólafsson

Grááni - Aporrectodea caliginosa (Savigny, 1826)

Fylking: Annelida Flokkur: Oligochaeta Ættbálkur: Haplotaxida Ætt:Lumbricidae

Grááni - Aporrectodea caliginiosa

Grááni. 80 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Upprunaleg útbreiðsla er á vestanverðu palearktíska svæðinu (Evrópa, Asía) og á því nearktíska austanverðu (N-Ameríka). Hefur borist til margra annarra svæða á tempraða belti jarðarinnar. Nær töluvert norður eftir Skandinavíu.

Ísland
Láglendi í flestum landshlutum, einkum þar sem mannshöndin hefur ræktað jörðina sér til ánægju og framfæris.

Lífshættir
Tún og ræktarlönd, graslendir móar, skóglendi, húsagarðar. Sækir ekki í rotnandi lauf. Gráániverpir einkum á vorin og haustin ofan í jarðveginum.

Almennt
Grááni fylgir manninum þar sem hann umbyltir landi. Hann er t.d. kunnur fyrir að leggja undir sig raskað land þar sem aðrar tegundir hafa hrakist burt. Hann er mjög algengur í görðum á höfuðborgarsvæðinu og telst þar til vorboðanna. Þegar fyrstu vormerkja verður vart í görðum í apríl eftir hressilega úrkomu skríða gráánar upp úr jarðveginum í miklum fjölda dreifast til allra átta. Þá birtist mikill fjöldi þeirra skríðandi á blautum gangstéttum og malbiki. Þetta flökkuástand gráánanna getur varað í nokkra daga. Grááni er grannur og fölur á lit, ljósfjólublár, oft með afmarkaðan bleikleitan afturenda.

Heimildir

Backlund, H.O. 1949. Oligochaeta 1. Lumbricidae. Zoology of Iceland IV, Part 20a. Munksgaard, Kaup-mannahöfn. 15 bls.

Bengtson, S.-A., A. Nilsson, S. Nordström & S. Rundgren 1975. Habitat selection of lumbricids in Iceland. Oikos 26: 253–263.

Bjarni E. Guðleifsson & Rögnvaldur Ólafsson 1981. Athugun á ánamöðkum í túnum í Eyjafirði.

Hólmfríður Sigurðardóttir 1994. Ánamaðkar. Náttúrufræðingurinn 64: 139–148.

Sims, R.W. & B.M. Gerard 1985. Earthworms. Synopses of the British Fauna (New Series) 31. The Linnean Society of London. 171 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allir ánar | Allar pöddur | Íslenska fánan

 


Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica