Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Skemmukönguló (Tegenaria atrica ), nýr landnemi í birgðageymslum. © Erling Ólafsson

Tjarnatíta - Arctocorisa carinata (C.R. Sahlberg, 1819)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Hemiptera Ætt: Corixidae

Tjarnatíta - Arctocorisa carinata

Tjarnatíta. 8 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
N-Evrópa, þ.e. Skandinavía og austur um Kólaskaga til Úralfjalla og Síberíu, Skotland, Færeyjar, Hjaltlandseyjar, svo og fjalllendi M-Evrópu, Alpafjöll og Pýreneafjöll.

Ísland
Láglendi um land allt og á miðhálendinu við Hvítárvatn.

Lífshættir
Tjarnatíta lifir í gróðurríkum tjörnum og pollum. Hún finnst einnig í grunnum pollum þar sem minni er gróðurinn og í lygnum við lækjarbakka, stundum í volgum laugum og jafnvel í ísöltu vatni við sjávarstrendur. Tjarnatíta brúar veturinn á fullorðinsstigi. Hún fer að vakna af dvalanum snemma í apríl og fullorðin dýr sjást fram í byrjun júní. Þá taka gyðlur við. Ný kynslóð fullorðinna dýra birtist svo upp úr miðjum ágúst. Tjarnatíta nærist á vatnagróðrinum.

Almennt
Tjarnatíta er áberandi þar sem hún syndir innan um vatnagróðurinn með skrykkjóttum sundtökum. Stundum iðar vatnið af títunum, einkum þar sem ungviði er á ferð. Mið- og afturfætur eru sérstaklega mótaðir sundfætur. Fullþroska er tjarnatíta er um 8 mm á lengd, brún og drappsprengd á lit. Afturbolurinn er hulinn leðurkenndum framvængjum en undir þeim eru samanbrotnir flugvængir sem nýtast til flugs á milli tjarna. Ungviðið líkist fullorðnum dýrum en er minna og vænglaust. Tjarnatíta er eina skortítan sem lifir í vatni hér á landi.

Heimildir

Fristrup, B. 1945. Hemiptera 1.Heteroptera and Homoptera Auchenorhyncha. Zoology of Iceland III, Part 51. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 21 bls.

Jansson, A. 1980. Postglacial distributional history of the water Boatman, Arctocorisa carinata (Heteroptera: Corixidae). Entomologica Generalis 6: 235–245.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allar skortítur | Allar pöddur | Íslenska fánan

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica