Lyngbobbi - Arianta arbustorum (Linnaeus, 1758)
Fylking: Mollusca Flokkur: Gastropoda Ættbálkur: Pulmonata Ætt: Helicidae
![]() |
|
Lyngbobbi. 20 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka] |
Útbreiðsla
Norðvestur- og Mið-Evrópa, austur til Úkraínu og Rúmeníu; Færeyjar.
Ísland
Lyngbobbi er útbreiddur á Austurlandi frá Gunnólfsvíkurfjalli við Bakkaflóa og suður til Kvískerja í Öræfum. Einnig hefur lyngbobba verið getið frá þrem stöðum á Vestfjörðum (Reykjafirði í Arnarfirði, Höfða við Dýrafjörð og Ísafirði). Á seinni árum hefur tegundin fundist í Breiðuvík á Snæfellsnesi, á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Lífshættir
Á Austurlandi er lyngbobbi einna algengastur í skóglendi, birkiskógum og lerkiskógum en finnst einnig í gróðurríku mólendi. Á Snæfellsnesi fannst hann í gróðurbrekkum með grösum, og blómplöntum. Á höfuðborgarsvæðinu er hann einkum í gróðurríku óræktarlandi. Lyngbobbi nærist á plöntum.
Almennt
Lyngbobbi hefur löngum verið kenndur við Austurland. Fundarstaðir á Vestfjörðum stinga í stúf og er ekki vitað hvort tegundin er staðbundin þar. Í Breiðuvík á Snæfellsnesi fundust tveir sniglar árið 1991 sem bendir til að lyngbobbinn hafi borist þangað og sest að. Það hefur þó ekki verið sannreynt síðar. Landnám á höfuðborgarsvæðinu er ungt. Fyrst segir af snigli í Örfirisey sem grunur lék á að hefði borist með timburfarmi frá Eistlandi. Næst fundust sniglar í húsagarði í Reykjavík 1998 og í óræktarlimgerði við íþróttasvæði í Hafnarfirði 2001. Síðan hefur tegundinni fjölgað mikið á þessu svæði. Þá fannst lyngbobb í garði á Akureyri 2010.
Á það hefur verið bent að lyngbobbar á höfuðborgarsvæðinu séu öllu stærri en ættingjar þeirra á Austurlandi og því sé líklegt að þeir séu afkomendur slæðinga erlendis frá. Á svipuðum tíma (2003) barst lyngbobbi til Færeyja og settist þar að. Kuðungur lyngbobba er rauðbrúnn og greina á dekkra spíralbelti á miðjum vindingunum.
Heimildir
Árni Einarsson 1977. Íslenskir landkuðungar. Náttúrufræðingurinn 47: 65–128.
Hjörleifur Guttormsson 1972. Lyngbobbinn á Austurlandi Týli 2: 72–74.
Jensen, J.-K. 2005. Sniglar við Húsa. Dimmalætting 2005.
Mandahl-Barth, G. 1938. Land and Freshwater Mollusca. Zoology of Iceland IV, Part 65. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 31 bls.
Páll Einarsson 2003.Lyngbobbi finnst í Reykjavík. Náttúrufræðingurinn 71: 134–137.
Pfleger, V. & J. Chatfield 1988. A Guide to Snails of Britain and Europe. Hamlyn, England. 216 bls.
Ævar Petersen 1992. Nýr fundarstaður lyngbobba Náttúrufræðingurinn 61: 133–135.
©Erling Ólafsson, 24. ágúst 2010
Allir sniglar | Allar pöddur | Íslenska fánan


