Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Holugeitungsdrottning (Vespula vulgaris), óvelkominn landnemi. © Erling Ólafsson

Tröllasmiður - Carabus problematicus (Herbst, 1786)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Coleoptera Ætt: Carabidae

Tröllasmiður - Carabus problematicus

Tröllasmiður. 21 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Skandinavía, Kólaskagi, Skotland og Færeyjar.

Ísland
Staðbundinn í Nesjum í Hornafirði, frá Hoffelli suður og austur fyrir Almannaskarð.

Lífshættir
Búsvæði tröllasmiðs er í gras- og mólendi og grýttu landi með rótum fjalla og út frá þeim eftir því sem best er vitað. Hann leynist að mestu undir steinum að degi til og fer á stjá á nóttinni. Þá veiðir hann önnur smádýr af ýmsu tagi, m.a. snigla.

Almennt
Tröllasmiður er eitt stærsta skordýrið á landinu og er talinn hafa lifað hér frá fornu fari. Niðurstöður rannsókna sýndu að íslenski tröllasmiðurinn sé það frábrugðinn tröllasmiðum í nágrannalöndum okkar að hann verðskuldaði að vera skilgreindur sem sérstök undirtegund (C. p. islandicus). Tröllasmiður er Hornfirðingum kunnur og hefur löngum gengið undir heitinu tordýflamóðir þar í sveit. Ekki er vitað hversu gamalt heitið er en elstu menn í sveitinni ólust upp við það. Tordýfill er staðbundið heiti á járnsmið (Nebria rufescens) sem er náinn ættingi, áþekkur að sköpulagi en miklu minni. Það skýrir tilvísunina til móður hans.

Heimildir

Larsson, S.G. & Geir Gígja 1959. Coleoptera 1. Synopsis. Zoology of Iceland III, Part 46a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 218 bls.

Lindroth, C.H. 1968. The Icelandic form of Carabus problematicus Herbst (Col. Carabidae) A statistic treatment of subspecies. Opusc. ent. 33: 157–182.

Lindroth, C.H., 1985. The Carabidae (Coleoptera) of Fennoscandia and Denmark. Fauna entomologica scandinavica 15, part 1. E.J. Brill/Scandinavian Science Press Ltd, Leiden, Kaupmannahöfn. 225 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allar bjöllur | Allar pöddur | Íslenska fánan

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica