Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Skógbursta, fer fjölgandi með hlýnandi loftslagi. © Erling Ólafsson

Brekkubobbi - Cepaea hortensis (O.F. Müller, 1774)

Fylking: Mollusca Flokkur: Gastropoda Ættbálkur: Pulmonata Ætt: Helicidae

Brekkubobbi - Cepaea hortensis

Brekkubobbi, 19 mm. ©EÓBrekkubobbi - Cepaea hortensisBrekkubobbi, 18 mm. ©EÓ

[Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
Vestur- og Mið-Evrópa, Alpafjöll, Bretland, sunnanverð Skandinavía, Eystrasaltslönd.

Ísland
Finnst á fáeinum stöðum syðst á landinu, frá Drangshlíð undir Eyjafjöllum og austur að Höfðabrekku í Mýrdal. Hefur einnig fundist í Heimaey. Einnig hefur brekkubobba verið getið frá Norðfirði, Hornafirði og Núpshlíð á SV-landi, en ólíklegt er að hann finnist þar lengur ef hann hefur þá nokkurn tímann átt þar fastan samastað.

Lífshættir
Brekkubobbi heldur til í gróðurþykkni og á aðliggjandi blautum klettum. Hvannstóð austur undir Reynisfjalli eru dæmigert kjörlendi tegundarinnar. Brekkubobbi nærist á plöntum.

Almennt
Brekkubobbi hefur sennilega verið í landinu frá fornu fari því Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson urðu hans varir á ferðum sínum um landið á 18. öldinni. E.t.v. hefur hann borist til landsins með landnámsmönnum. Þó tegundin sé fágæt finnst töluvert af brekkubobbum þar sem hann lifir í ríkulegum gróðri uppi undir klettum t.d. við bæinn Drangshlíð undir Eyjafjöllum og í hvannstóðum við rætur Reynisfjalls í Vík í Mýrdal. Lagt hefur verið til að búsvæði hans þar verði verndað. Kuðungur brekkubobbans er breytilegur, stundum einlitur gulur en oftast með misbreiðum rauðbrúnum spíralbeltum á gulum vindingunum.

Heimildir

Árni Einarsson 1977. Íslenskir landkuðungar. Náttúrufræðingurinn 47: 65–128.

Eggert Olafsen & Biarne Povelsen 1772. Rejse igiennem Island foranstaltet af Viden-skabernes Sælskab i Kjøbenhavn. Sorøe. 1042 bls.

Mandahl-Barth, G. 1938. Land and Freshwater Mollusca. Zoology of Iceland IV, Part 65. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 31 bls.

María Harðardóttir, Erling Ólafsson, Kristinn Haukur Skarphéðinsson, Sigmundur Einarsson, Sigurður H. Magnússon, Stari Heiðmarson og Jón Gunnar Ottósson 2008. Verndun svæða, vistgerða og tegunda. Tillögur Náttúrufræðistofnunar Íslands vegna náttúruverndaráætlunar 2009-2013. NÍ-08008. 85 bls.

Pfleger, V. & J. Chatfield 1988. A Guide to Snails of Britain and Europe. Hamlyn, England. 216 bls.

Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allir sniglar | Allar pöddur | Íslenska fánan




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í náttúrunni > Listi yfir poddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica