Slæðingar með varningi
Fjöldamargar tegundir smádýra slæðast til landsins með varningi og farartækjum. Þær geta verið langt að komnar og því fer þess vegna fjarri að alltaf takist að nafngreina þær. Margar tegundanna eru tilfallandi og framandi og eiga hér ekki lífsvon. Sumar grípa þó tækifærið, þakka flutninginn pent og setjast hér að, ýmist innan húss eða utan.

