Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Skógbursta, fer fjölgandi með hlýnandi loftslagi. © Erling Ólafsson

Ætibobbi - Helix pomatia (Linnaeus, 1758)

Fylking: Mollusca Flokkur: Gastropoda Ættbálkur: Pulmonata Ætt: Helicidae

Krásarsnigill - Helix pomatia

Ætibobbi. 40 mm (kuðungur). ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
M-Evrópa; Bretland, Danmörk, S-Svíþjóð, suður til N-Ítalíu, austur til Búlgaríu, Rúmeníu og Úkraínu. innfluttur til Noregs og Englands.

Ísland
Aðeins fundinn í Reykjavík.

Lífshættir
Ætibobbi finnst í gróðurþykkni og oft á ræktarlandi þar sem loftslag er ljúft og nægilegs raka nýtur við.

Almennt
Ætibobbi var afar vinsæll af rómverskum matgæðingum á tímum Rómarveldisins og talið er að þeir hafi flutt hann með sér m.a. til Bretlandseyja á sínum tíma. Enn er hann vinsæll forréttur á borðum matgæðinga. Ætibobbi er mjög fágætur slæðingur til landsins með varningi. Algengara er að sjá snigilinn gómsæta í frystiborðum matvöruverslana. Hann hefur þrívegis fundist lifandi hér á landi svo kunnugt sé, í öll skiptin í Reykjavík. Fyrsti ætibobbinn sem kunnugt er um fannst í júlí 1999 og lék grunur á að hann hefði borist með vörum frá Danmörku. Sá næsti fannst í september 2008 skríðandi á stétt á Gelgjutanga, þar sem innflutningsfyrirtækin standa hlið við hlið, og hinn þriðji var skríðandi á gangstíg í Hólahverfi í lok maí 2009, sem erfitt er að skýra. Ólíklegt er að ætibobbi nái fótfestu hérlendis. Til þess er hann væntanlega of hitasækinn. Heimild er um einn ætibobba í Færeyjum (2007).

Heimildir

Jensen, J.-K. 2007. Insekter og andre dyr: Vinbjergsnegl Helix pomatia. www.jenskjeld.info/DK_side/indexdk.htm [skoðað 7.8.2009].

Pfleger, V. & J. Chatfield 1988. A Guide to Snails of Britain and Europe. Hamlyn, England. 216 bls.

©Erling Ólafsson, 3. febrúar 2011

Allir sniglar | Allar pöddur | Íslenska fánan




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Slæðingar með varningi > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica