Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Skemmukönguló (Tegenaria atrica ), nýr landnemi í birgðageymslum. © Erling Ólafsson

Kartöfluglytta - Leptinotarsa decemlineata (Say, 1824)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Coleoptera Ætt: Chrysomelidae

Kartöfluglytta - Leptinotarsa decemlineata

Kartöflubjalla. 9 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Talin upprunnin í suðvestanverðri N-Ameríku, í Kólóradó og Mexíkó. Barst þaðan til Evrópu með bandaríska hernum í fyrri heimsstyrjöldinni og hafði náð austur eftir M- og S-Evrópu á tímum seinni heimsstyrjaldar. Hún hefur nú breiðst áfram austur um Litlu-Asíu og Asíu á belti norðan fjallgarðanna miklu og norður um miðbik Síberíu allt að Okhotskhafi, einnig til N-Afríku. Hún hefur borist til Bretlandseyja og Norðurlanda án þess að ná þar fótfestu.

Ísland
Fundin á tveim stöðum á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjavík og á Seltjarnarnesi.

Lífshættir
Kartöfluglyttur liggja í vetrardvala á fullorðinsstigi, nokkuð djúpt í jörðu (25–40 cm). Þær koma upp á yfirborð á vorin eftir rigningar og þegar jarðvegshiti hefur náð 14°C hita á því dýpi sem þær sváfu. Þær koma þó ekki allar fram um sama leyti heldur dreifist koma þeirra á lengri tíma. Þær makast fljótlega og kvendýrin verpa strax að því loknu. Á einum mánuði geta þær verpt mörg hundruð eggjum og klekjast þau á 4–10 dögum. Lirfurnar ná fullum vexti á um 15 dögum, grafa sig þá niður í jarðveginn og púpa sig. Ný kynslóð bjallna skríður síðan úr púpum að 8–15 dögum liðnum á púpustigi. Sumar bjallnanna fara þegar að leggja drög að annarri kynslóð en ekki er tryggt að það leiði til kynþroska bjallna síðsumars. Hinar fara strax að grafa sig niður og leggjast í dvala. Kringum mánaðamót ágúst/september hverfa síðustu bjöllurnar niður í jarðveginn. Kartöfluglyttur lifa á plöntum af ættinni Solanaceae og þegar kartöfluplantan (Solanum tuberosum), sem á uppruna að rekja til Andesfjalla, barst til heimkynna bjöllunnar varð hún efst á matseðlinum.

Almennt
Kartöfluglytta hefur einnig gengið undir heitunum kartöflubjalla og kólóradóbjalla. Þekkt eru með vissu þrjú tilvik þar sem tegundin hefur borist hingað til lands með varningi, þ.e. frá Reykjavík 1966 og 2006 og Seltjarnarnesi 1997. Einnig eru sögusagnir af bjöllum í kartöfluförmum um borð í skipum fyrr á árum án frekari staðfestinga á því. Erlendis er kartöfluglytta alræmdur skaðvaldur á kartöfluökrum og getur valdið tilfinnanlegu tjóni á uppskeru, en bæði bjöllur og lirfur éta laufblöð plantnanna og geta aflaufgað þær gjörsamlega. Engin ástæða er til að óttast að þær nái að setjast hér að, þar sem aðstæður í N-Evrópu og Bretlandi virðast ekki henta tegundinni enn sem komið er. Kartöfluglytta er glæsileg bjalla. Höfuð og hálsskjöldur eru rauðgul með svörtum flekkjum, en skjaldvængir gulir, svartbryddir og með fjórum svörtum langröndum hvor.

Heimildir

Wikipedia 2009. Colorado potato beetle http://en.wikipedia.org/wiki/Colorado_potato_beetle [skoðað 7.8.2009].

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allar bjöllur | Allar pöddur | Íslenska fánan




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Slæðingar með varningi > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica