Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Varmasmiður (Carabus nemoralis Müller) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Kóprabjalla - Necrobia rufipes (De Geer, 1775)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Coleoptera Ætt: Cleridae

Kóprabjalla - Necrobia rufipes

Kóprabjalla. 6 mm. ©EÓKóprabjalla - Necrobia rufipesKóprabjalla. 6 mm. ©EÓ
[Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
Um heim allan.

Ísland
Fágætur slæðingur í Reykjavík, Kópavogi og Reykjanesbæ.

Lífshættir
Fullorðnar bjöllur og lirfur nærast á sömu fæðu og er hún afar fjölbreytt. Þær leggjast á fæðuna utan frá en naga sig ekki inn í hana. Kóprabjalla étur fæðu bæði úr plöntu- og dýraríkinu, en ef hún kemst í kjötmeti verpir hún fleiri eggjum og þroskatíminn styttist. Bjöllurnar leggjast á uppþornuð hræ sem þær naga og sækja mjög í ýmsar aðrar afurðir dýrakyns eins og þurrkaðan fisk, fiskimjöl, kjötmjöl, bein og beinamjöl, gúanó og jafnvel egypskar múmíur. Auk þess veiða þær önnur smádýr, jafnvel lirfur og púpur af eigin tegund. Fullorðnar bjöllur eru langlífar, geta lifað í allt að 14 mánuði. Við góð skilyrði við stofuhita ná þær fullorðinsstigi á um 36 dögum.

Almennt
Kóprabjalla er tilfallandi og fágætur slæðingur hérlendis. Fyrsta eintakið er frá Reykjavík í kringum 1950 og er þess getið í Zoology of Iceland án frekari upplýsinga. Næsta eintak var sennilega einnig frá Reykjavík en komið var með það árið 1973 á Tilraunastöðina að Keldum til athugunar. Nánari upplýsingar liggja ekki heldur fyrir um það. Í desember 2008 fundust í Kópavogi torkennilegar lirfur í poka með innfluttum hundamat. Tveim mánuðum síðar (í febrúar 2009) tóku fullorðnar kóprabjöllur svo að skríða um gólf á heimilinu.  Svipað atvik átti sér stað í nóvember 2011 í Reykjanesbæ. Þar komu kóprabjöllur sér fyrir um alla íbúð á skömmum tíma eftir að þeirra hafði orðið vart í poka með innfluttum hundamat. Þær voru upprættar á heimilinu en ný pakkning af hundamat var svo opnuð þar í janúar 2012 og sagan endurtók sig. Í nýju pakkningunni var líka urmull af kóprabjöllulirfum. Vara af þessu tagi er kjörfæða fyrir kóprabjöllur. Það er ljóst að framleiðendur sýktu vörunnar sem flutt hefur verið til landsins á undanförnum árum hafa ekki viðhaft þá aðgát sem þarf til að hún sé boðleg söluvara. Það er rétt að vera á varðbergi gagnvart innfluttum gæludýramat, þar sem kóprabjalla er klárlega meinsemd sem æskilegt er að hleypa ekki inn fyrir landsteina.

Kóprabjalla er falleg bjalla og auðþekkt. Hún er gljáandi blágræn á lit með dökkrauða fætur. Lirfan er mött grábrún, nema haus og næsta bakplata fyrir aftan eru gljáandi rauðbrún. Lirfan mjókkar fram á haus. Á afturenda eru tveir hornlaga gaddar.

Heimildir

Åkerlund, M. 1991. Ängrar – finns dom ...? Om skadeinsekter i museer och magasin. Naturhistoriska riksmuseet og Svenska museiföringen, Stokkhólmi. 207 bls.

Larsson, S.G. & Geir Gígja 1959. Coleoptera 1. Synopsis. Zoology of Iceland III, Part 46a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 218 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009; uppfært 20. janúar 2012


Allar bjöllur | Allar pöddur | Íslenska fánan




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Slæðingar með varningi > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica