Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Skógbursta, fer fjölgandi með hlýnandi loftslagi. © Erling Ólafsson

Rauðbukkur - Pyrrhidium sanguineum (Linnaeus, 1758)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Coleoptera Ætt: Cerambycidae

Rauðbukkur - Pyrrhidium sanguineum

Rauðbukkur. 10 mm. ©EÓRauðbukkur - Pyrrhidium sanguineumRauðbukkur. 10 mm. ©EÓ
[Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
Evrópa, norður í sunnanverða Skandinavíu, N-Afríka, Tyrkland, Sýrland, Íran.

Ísland
Fágætur slæðingur. Reykjavík (um 1950, 2002,2007, 2009), Holt (1980), Garðabær (1994), Kópavogur (2002), Seltjarnarnes (2002), Hafnarfjörður (2009), Akureyri (2009, 2011).

Lífshættir
Laufskógar. Lirfur alast upp undir og í berki á lifandi og dauðum lauftrjám, t.d. eik, beyki, álmi og eplatrjám. Í Svíþjóð finnst tegundin einkum á eik og finnst gjarnan í trjám sem hafa fallið og drepist og í restum af trjám sem liggja eftir skógarhögg. Lirfur vaxa upp á einu til tveim árum.

Almennt
Rauðbukkur hefur borist til Íslands með timburvörum, einkum með viði sem klæddur er berki. Árið 2007 bárust Náttúrufræðistofnun 10 eintök af höfuðborgarsvæðinu dagana 29. janúar til 6. febrúar og 25. mars sem bendir til fluttur hafi verið til landsins sýktur viðarfarmur af einhverju tagi. Svipað atvik endurtók sig í byrjun árs 2009. Tveir rauðbukkar fundust á Akureyri 19. janúar og höfðu borist þangað með innfluttum arinkubbum frá Rúmfatalagernum. Þeir voru sendir til Náttúrufræðistofnunar. Þann 28. janúar barst mynd af rauðbukk sem fannst í Reykjavík og hafði verið fargað. Annað eintak barst svo frá sama aðila 14. febrúar, en sá hafði þá fundið um 5 bjöllur hjá sér frá því snemma í janúar. Þær tengdust einnig arinkubbum frá Rúmfatalagernum. Næst fannst rauðbukkur í Hafnarfirði 11. febrúar það ár. Innfluttir arinkubbar með berki skýrðu augljóslega þessa innrás. Þann 24. mars 2011 varð vart við marga rauðbukka á trésmíðaverkstæði á Akureyri eftir að eik með berki hafði verið tekin í hús.Smíðaviðurinn var fluttur til landsins haustið 2010.

Rauðbukkur er auðþekktur frá öðrum trjábukkum á afar sérstökum rauðum lit á ofanverðum bolnum öllum. Kviðurinn er hins vegar svartur, einnig fálmarar og fætur.

Heimildir

Ehnström, B. 2007. Skalbaggar: Långhorningar. Coleoptera: Cerambycidae. Nationalnyckeln till Sveriges flora och fauna. Svenska artprojektet, Artdatabanken, Uppsala. 302 bls.

Larsson, S.G. & Geir Gígja 1959. Coleoptera 1. Synopsis. Zoology of Iceland III, Part 46a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 218 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009; uppfært 6. apríl 2011


Allar bjöllur | Allar pöddur | Íslenska fánan

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Slæðingar með varningi > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica